„Gaman að Bylgjunni á morgnana núna, Heimir og Kolla eru algjörlega rödd fólksins og spyrja réttu spurninganna,“ sagði ég við Ástu þar sem við ókum Kjalarnesið rétt fyrir kl. 7 í morgun. „Ég hlustaði ekki á þessa stöð um mjög langt skeið,“ bætti ég einlæglega við, „m.a. af því að Heimir sagði eitthvað mjög ljótt og ósanngjarnt um reykingamenn, það var eins og hann dæmdi þá alla sem tillitslausa aumingja,“ Ásta hnussaði. „Það er nú bara af því að þú reykir sjálf!“ „Já, ég hefði líka orðið mjög sár ef hann hefði t.d. sagt að allir Skagamenn væru hálfvitar ... Mér finnst ekki rétt að útvarpsmenn segi skoðun sína á einni "tegund" manna, það hefur verið skotveiðileyfi á reykingamenn um langt skeið, eins og við borgum mikið til ríkisins. Svo stefni ég að því að deyja ung (kannski um sjötugt) fæ engin eftirlaun og verð ekki ómagi á þjóðfélaginu.“ sagði ég eða hefði gert ef mér hefði hugkvæmst það þá.
Ég veikist einu sinni til tvisvar á ári og fæ ekki skammir hjá lækni fyrir að reykja, ég er víst svo óreykingaleg í útliti (ekki horuð og hóstandi með gula putta) og reyki svo sem frekar lítið, aldrei fyrr en eftir hádegi og bara þrjár á dag í vinnunni.
Annars hófst dagurinn frábærlega ... setti þurrkarann í gang með fötunum mínum í ... og klæddi mig skjálfandi af kulda í heit fötin mín, það var dásamlegt. Hver þarf eiginmann sem á hlýjandi þurrkara? Myndin hér að ofan er sérstaklega til heiðurs okkur piparjúnkunum. Hún gefur einnig hugmynd að jólagjöf handa einhleypum konum. Örugglega auðvelt fyrir þá sem eru myndarlegir í höndunum að útbúa svona úr svampi eða eitthvað ...
Ég vann 15.000 kall í Happdrætti Háskólans skv. Mogganum í dag ... eða hefði gert ef ég hefði ekki hætt með þessa miða fyrir 25 árum. Var með fjóra einfalda miða og get ekki gleymt númerunum (55584, 56622, 58358 sem vann, og 59455). Kíki alltaf á númerin þegar dregið er og gróði minn að hafa sleppt miðunum er gríðarlegur, hef fengið kannski lægsta vinning á 4 ára fresti! Ég hef þess í stað enga von um óvæntan gróða og Háskóli Íslands fer á mis við peningana mína, sorrí HÍ.
SÁTT VIÐ að Áfram með lífið-tónleikarnir með Baggalút, Bubba, Buffi, Bagnheiði Gröndal, Bálinni hans Jóns míns Bay Low ofl. verður á laugardagsKVÖLDIÐ kl. 20, ekki um miðjan dag og skemma þannig mótmælin, eins og ég óttaðist á tímabili.
ÓSÁTT VIÐ Ólaf Ragnar fyrir nýjustu afrekin - ef þetta er satt. Hann stendur mun betur með þjóðinni með því að halda ró sinni og virðuleika ... og það er alltaf farsælast, tala af reynslu, missti tvo vini á þessu ári vegna afleiðinga fljótfærnislegrar reiðifærslu á Moggablogginu. En sjá frétt hér á www.dv.is þar sem m.a. þetta kemur fram: Í norska vefmiðlinum Varden.no segir frá því að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi misst stjórn á skapi sínu við hádegisverð með erlendum sendiherrum síðastliðinn föstudag. „Slegnir sendiherrar trúðu vart eigin eyrum,“ segir í minnisblaði frá norska sendiráðinu. „Forsetinn lét þung orð falla í garð margra þeirra þjóða sem áttu fulltrúa þarna, þeirra á meðal Svíþjóðar og Danmerkur. Forsetinn viðhafði móðgandi ummæli um Breta.“ osfrv ...
Það er hlegið að okkur um allan heim eða hneykslast, ekki bara út af þessu, heldur öllu! Þögnin ríkir enn, enginn veit fyrir víst hvers vegna enginn vill lána okkur peninga. Er það Bretum og Hollendingum að kenna, er það því að kenna að við höfum ekki skipt um seðlabankastjórana? Þorir Geir ekki að reka Davíð af hræðslu við að hann stofni nýjan Sjálfstæðisflokk? Ég veit ekki hverju hægt er að trúa en óvissan er ömurleg. Hvernig væri svo að láta almenning í Bretlandi og Hollandi (og Þýskalandi) vita að almenningur á Íslandi þjáist líka, hefur tapað miklu fé á hruninu, misst vinnuna og sér fram á harða kreppu næstu mánuði og jafnvel ár. Svo er reynt að kenna okkur um, við vorum svo eyðslusöm, lifðum um efni fram osfrv. ég hef séð á kommentum við erlendar greinar um ástandið að fólk er reitt út í alla Íslendinga, ekki bara íslensk stjórnvöld eða bankaeigendurna. Okkur Íslendinga vantar góða talsmenn NÚNA!
Blogg
Sátt við tónleikana, ósátt við forsetann ...
10:07 › 12. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
