ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Afmæli Nadeen

21:02 › 11. nóvember 2008

Nadeen litla, þykjustu-barnabarnið
mitt
, er þriggja ára í dag. Heimsótti hana að sjálfsögðu með litla afmælisgjöf seinnipartinn í dag.
Hún er orðin alsæl á leikskólanum, að sögn Línu, eins og hún grét mikið fyrstu
dagana. Svo skilur hún heilmikið í íslensku og
styttist eflaust í að hún verði túlkur, svona ef þarf.

Dóttir Jennýjar
bloggvinkonu
kom með fullan poka af flottum fötum (af Jennýju yngri) á Nadeen í
vinnuna til mín í gær og ég kippti honum með. Sú stutta var ánægð með að fá afmælisgjöf og var líka stórhrifin af flottu fötunum, þegar hún mátaði
einn kjólinn sagði ég henni að hlaupa fram til mömmu og sýna henni.
Þetta skildi hún alveg og hljóp fram stolt í bragði. Línu og strákunum fer líka
mikið fram í íslenskunni. Bók sem ég gaf Nadeen kennir börnum að telja og Lína
settist með hana, fletti bókinni og taldi upp í tíu á íslensku með henni, Nadeen endurtók allt og var mjög skýrmælt eins og Lína.

Lína kemur mér stöðugt á óvart, hún er svo sjálfbjarga eftir aðeins tveggja mánaða dvöl hér á landi. Hún ratar orðið um allt hérna á Skaganum og býr greinilega yfir mikilli aðlögunarhæfni. Ég er stórhrifin. Hún sagði mér að konurnar hefðu líka mikinn styrk hver af annarri, hittust reglulega, borðuðu saman og gerðu eitthvað skemmtilegt. Svona eins og tíðkast t.d. í Íslendinga"byggðunum" í Danmörku þar sem námsmenn halda mikið saman. Ég ætla að reyna að bjóða henni og börnum í mat fljótlega og ætla að hafa eitthvað í matinn sem þau geta örugglega borðað, aðeins of snemmt fyrir þorramat, finnst mér ... hehehe. Best að leita á náðir Nönnu, kannski nóg að kíkja bara í Matarást, þá snilldarbók. Svo sagðist Lína vera alveg til í að kenna mér að búa til palestínskan mat. Þegar hún bauð okkur stuðningsfjölskyldunum í mat um daginn urðum við stórhrifin af matseld hennar og borðuðum á okkur gat.

Á föstudaginn verður haldið upp á afmæli Nadeen og þar verður mikið húllumhæ, ætla ekki að láta mig vanta. Eftir að hafa alið upp erfðaprinsinn veit ég að það er líf eftir barnaafmæli.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?