ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

The Hviðs: Hetjur í 39 m/sek ...

07:53 › 10. nóvember 2008

Kíkti á vef Vegagerðarinnar kl. 6.15 í morgun. Hann sýndi að hviður á Kjalarnesi voru 39 m/sek!!! Ég fékk sjokk, kíkti á gemsann minn en ekkert SMS frá Ástu um að það væri ófært. Hún hatar hviður þótt hún sé hetja. Hún mætti fyrir utan himnaríki á sekúndunni 6.21, fékk fjórfaldan latte að vanda og hviðumálið komst ekki í umræðu fyrr en rétt fyrir Beygju Andskotans niður í Kollafjörð (ef maður fýkur út af þar þá krambúlerast maður ekki bara, heldur drukknar líka, algjör viðbjóður). Ásta hélt einhvern veginn að hviður væru 20 m/sek, hvaðan sem hún fékk það .... Ég sagði varfærnislega að þær væru reyndar yfir 30, a.m.k. 35. Vildi ekki ýkja þetta því að the hviðs virtust vera á niðurleið þegar ég kíkti. Enda rétt, við mættum strætó í Mosó, sem fer ekki þegar hviður eru yfir 34, og á mælinum í Mosó stóð 33 m/sek. Ekki lífshætta svo sem ...
Annað hroðalega spennandi sem gerðist á leiðinni var að bensínljósið fór að blikka á miðri leið og við rétt sluppum inn á bensínstöðina mína (Select, stoppistöðin okkar Sigþóru, rétt fyrir neðan Hálsaskóg). Klukkan í bílnum sló sjö högg og fréttir hófust á meðan Ásta dældi á. Hún ætlaði að fá þjónustu en ekki séns að fá slíkt fyrir kl. 7.30, að sögn Select-bensínafgreiðslumannsins sem virtist bara vera að spjalla við samstarfsmenn. Svo sá ég hann koma út og hélt að hann ætlaði að aumka sig yfir Ástu en nei, hann kom bara til að njóta fegurðar hennar, drepa tímann í hálftíma í viðbót. Svo átti að rukka Ástu um bensínið með þjónustuskatti og allt en Ásta er ekki bara sæt, heldur klár líka og lét ekki vaða svona yfir sig. Hún rústaði bensínstöðinni með kuldalegum orðum, hugsa ég, og kom svo hress og kát út í bíl.

Megi dagurinn ykkar vera svaðalega skemmtilegur, fullur af daðri, dufli og demöntum! Mæli svo um og legg á!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?