ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Keliríslög og breytt samkvæmislíf

14:37 › 1. nóvember 2008

Sit í nostalgíukasti hérna við að hlusta á gömul og góð lög á Youtube. Lagið Changes með Black Sabbath minnir t.d. sterkt á eitthvert kelirí fyrir langalöngu sem ég get hreinlega ekki rifjað upp, hélt ég hefði lista yfir alla kærastana í Dagbók veiðimannsins sem ég hef haldið samviskusamlega í 35 ár. Ja, hvar ætli bókarhelvítið sé?

http://www.youtube.com/watch?v=2LGNG0VY8_k


 
Var að uppgötva að samkvæmislíf mitt
 er ekki upp á marga fiska ... þegar ég skipulagði helgina í gær fannst mér girnilegt að kíkja á basar á Dvalarheimilinu Höfða sem stendur yfir núna og svo kannski á Halloween-ball til að hitta Línu og krakkana, fara svo á vinjéttuupplestur í Skrúðgarðinum en svo hringdi María í Skrúðgarðinum og spurði hvort ég væri til í að lesa upp úr vínjettubók kl. 16.30 og ég sagði bara já. Skipulegg oft eitthvað og geri svo ekki neitt. Les bara, drekk latte og horfi á sjóinn ... en mæti svo sem úthvíld og hress til vinnu á mánudögum. Himnaríki er sjálfhreinsandi íbúð svo ekki þarf ég að eyða tímanum í þrif, nema erfðaprinsinn stelist í tiltektir eftir skóla á daginn.  
Hugsa að ég leggist bara í lestur í kvöld ... en sleppi ekki Bond-myndinni með Daniel Craig sem verður á Stöð 2 í kvöld.  



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?