Í hádeginu ákvað ég að standa
með þjóð minni og borða saltkjöt og baunir í matsalnum. Getur það verið
þjóðlegra? Ég var búin að fussa og sveia yfir þessum matseðli dagsins
(pasta sem “grænmetis”réttur). Þegar samstarfsfólk mitt, hið sama
kannski og úðaði í sig reyktu ýsunni um daginn, kom úr matsalnum með
gleðiglampa í augum og strjúkandi vömbina ákvað ég að hætta þessu
mótmælasvelti og sá ekki eftir því.
Lenti í spjalli að vanda
eftir matinn og heyrðist á mönnum að þjóðfélagið myndi skjótt snúast
við. Nú létu menn sér ekki nægja að þiggja smávinninga í peningakössum
Háspennu, heldur tækju þeir bara kassann. Nokkrir ungir menn gerðu sér
víst lítið fyrir í gær og reyndu að ræna einn spilakassavinningshafa
þegar hann kom út af sódómugómorrustaðnum þar sem hann hafði grætt
eitthvað smá. Skelltu poka yfir hausinn á honum og bjuggu sig undir að
ræna hann. Vinningshafinn reif pokann af hausnum og kýldi gaurana, enda
hraustur Ísfirðingur.
Svo voru einhverjir sem pældu
í því hvort sáttmálar fyrri alda væru ekki enn í gildi og við gætum þá
t.d. gert kröfu í olíulindir Norðmanna ... Lengi lifi konungurinn!
Við heimkomu setti ég sem
snöggvast á Sky News. Aðalfréttin var ömurlegt attitjút Íslendinga,
öllu heldur ráðamanna. Ég er mjög hrifin af Bretum og skil alveg að
þeir séu grútspældir út í suma auðmennina okkar og viðbrögð ráðamanna
okkar. Er ekki þannig í heiminum núna að hver hugsar um sig, líka
Evrópusambandsþjóðirnar? Spennandi að vita hvernig þetta fer.
Ábyggilega kalt stríð eitthvað áfram.
Ég ætlaði eldsnemma í rúmið
en nýtt og spennandi verkefni bættist óvænt við ... og hef setið við
tölvuna og unnið í allt kvöld, horft m.a. á Prison Break með öðru, en
nú er það bað og síðan bólið. Eins og ég er með girnilegar bækur til að
lesa verð ég að geyma þær til helgarinnar.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
