ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Þjóðlegt skal það vera ...

23:25 › 9. október 2008



TúkallÍ hádeginu ákvað ég að standa með þjóð minni og borða saltkjöt og
baunir í matsalnum. Getur það verið þjóðlegra? Ég var búin að fussa og sveia
yfir þessum matseðli dagsins (pasta sem “grænmetis”réttur). Þegar samstarfsfólk
mitt, hið sama kannski og úðaði í sig reyktu ýsunni um daginn, kom úr matsalnum
með gleðiglampa í augum og strjúkandi vömbina ákvað ég að hætta þessu mótmælasvelti
og sá ekki eftir því.

Lenti í spjalli að vanda eftir matinn og heyrðist á mönnum að þjóðfélagið
myndi skjótt snúast við. Nú létu menn sér ekki nægja að þiggja smávinninga í
peningakössum Háspennu, heldur tækju þeir bara kassann. Nokkrir ungir menn
gerðu sér víst lítið fyrir í gær og reyndu að ræna einn spilakassavinningshafa
þegar hann kom út af sódómugómorrustaðnum þar sem hann hafði grætt eitthvað smá.
Skelltu poka yfir hausinn á honum og bjuggu sig undir að ræna hann.
Vinningshafinn reif pokann af hausnum og kýldi gaurana, enda hraustur Ísfirðingur.

Svo voru einhverjir sem pældu í því hvort sáttmálar fyrri alda væru
ekki enn í gildi og við gætum þá t.d. gert kröfu í olíulindir Norðmanna ...
Lengi lifi konungurinn!

Við heimkomu setti ég sem snöggvast á Sky News. Aðalfréttin var ömurlegt
attitjút Íslendinga, öllu heldur ráðamanna. Ég er mjög hrifin af Bretum og skil
alveg að þeir séu grútspældir út í suma auðmennina okkar og viðbrögð ráðamanna
okkar. Er ekki þannig í heiminum núna að hver hugsar um sig, líka Evrópusambandsþjóðirnar?
Spennandi að vita hvernig þetta fer. Ábyggilega kalt stríð eitthvað áfram.

Ég ætlaði eldsnemma í rúmið en nýtt og spennandi verkefni bættist óvænt
við ... og hef setið við tölvuna og unnið í allt kvöld, horft m.a. á Prison
Break með öðru, en nú er það bað og síðan bólið. Eins og ég er með girnilegar
bækur til að lesa verð ég að geyma þær til helgarinnar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?