Assgolli var hvasst á Kjalarnesinu í morgun, hviðumælirinn sagði að vanda 27 m/sek en Ásta mælti spámannslega: Þetta? Þetta eru 34 m/sek. Það hvarflar ekki að mér eitt orð að efast um orð hennar. Hún hélt fast um stýrið og sagðist ekki halda að til væri sú upphæð sem nægði til að borga henni fyrir að taka strætó í þessum vindi. Mig langaði að bjóða henni 300 milljarða en hætti við. Hver hefði þá átt að keyra mig í vinnuna ef Ásta sæti í strætó og nagaði sætið fyrir framan sig?
Rétt fyrir heimför í gær kom ég við í Kaffitári við Bankastræti til kaupa latte fyrir heimferðina á Skagann. Þar hitti ég elskuna hana Láru Hönnu, þýðanda Bold and the Beautiful og bloggsnilling hér á Moggabloggi. Það urðu miklir fagnaðarfundir og þessi elska, sem var í kaffibaunakaupaerindi þarna, keypti ögn meira en vanalega og gaf mér með sér, eða heilt kíló af Espressóbaunum sem er nú komið í himnaríki og bíður eftir drykkjuskap okkar erfðaprins. Hvernig gat Lára Hanna hafa fundið á sér að elsku bankinn minn yrði tekinn eignarnámi í nótt mögulega vegna ógætilegra orða seðlabankastjóra (skv. www.dv.is og fl.) og vitað að ég þyrfti á svona góðri gjöf að halda? Takk, engill.
Munið hvernig lífið var fyrir rúmu ári, eða þar til bansettur veruleikinn bankaði upp á? Flettið og njótið. http://www.visir.is/ExternalData/pdf/sirkus/S070119.pdf
P.s. John Lennon, til hamingju með afmælið, hvar sem þú ert!



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
