Þegar ég labbaði niður tröppurnar í morgun skömmu fyrir kl. 6.30 sá ég lögreglubíl dólandi skammt frá. Ókei, útgöngubann skollið á, hugsaði ég og reyndi að halda ró minni. Fréttirnar hafa verið svo sjokkerandi undanfarið að það hefði ekki komið mér á óvart. Svo kom Ásta keyrandi, sallaróleg og töff að vanda og löggan flúði, enda getur Ásta vissulega verið ógnandi þegar hún tekur sig til og það veit löggan. Þeir eru því miður ekki hræddir við mig, löggumennirnir. Þeir, eins og flestir, halda að ég sé miklu betri manneskja en ég er ... gjörsamlega óþolandi! Einu sinni gerði ég t.d. létt grín að bók sem kom út í kjölfar vinsælda Da Vinci-lykilsins ... Ég taldi upp persónur bókarinnar og hluta plottsins sem var bókstaflega eins og í Da Vinci-lyklinum. Ég endaði á því að skrifa: „Að öðru leyti minnir þessi bók ekki á Da Vinci lykilinn.“ Svo flissaði ég subbulega og ýtti á Vista og birta. Kommentin sem ég fékk á færsluna voru á þann veg að fólk ætlaði sannarlega að fá sér þessa bók og lesa, sem var bara fínt, þetta var fínasta bók, spennandi og alles þótt hún fetaði samviskusamlega í fótspor DV-lykilsins efnislega séð. En það fattaði enginn að ég var að reyna að vera pínku hæðin og andstyggileg.
Ég sagði Ástu á leiðinni að ég hefði keypt kreppumat í Einarsbúð í gær, pasta, hvítlauk, lauk og slíkt ódýrt og nú verði bara kolvetnasukk á heimilinu. Hún var í svipuðum þönkum og keypti pítubrauð, 4 í pakka á 200 kall, og það bragðaðist bara vel með einhvefju grænmeti í, auðvitað. Mig langaði að kaupa lifur en ég lærði einu sinni ansi góða uppskrift að lifrarbuffi ... sem er næstum eins og lummuuppskrift (mínus sykur), með hveiti, eggi, mjólk og svona, líka bakað eins og lummur og er bara hrikalega gott með kartöflumús (ekki úr pakka). Best að kaupa lifur fyrir helgina. Verst að eiga ekki hakkavél eða matvinnsluvél eða blender ... eða jamm, allt slíkt á HOLD fram fyrir kreppu.
Mikið er æðislegt að það verði tónleikar til styrktar litlu snúllunni henni Ellu Dís á mánudaginn kemur. Vikan var einmitt með viðtal við mömmu hennar í fyrra. Skrýtið ... að í skjáauglýsingum Stöðvar 2 segir þulurinn „til styrktar Ellu DísAR“ Vona að þetta verði lagað!
Megi dagurinn ykkar verða sem allra bestur!



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
