ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Algjört bold

12:00 › 7. október 2008

Þetta sagði völva Vikunnar m.a. um síðustu áramót:

Völvuforsíða 2007 „Fjármálakreppa
er fram undan á Íslandi, eins og við höfum séð undanfarið, og blaðran
er að springa. Það verður hrun á peningamarkaði og það syrtir í álinn
hjá fólki aðeins meir en nú er. Við þurfum að ná botninum til að ná
jafnvægi aftur.
Það verður hrun hjá sumum og nýtt upphaf hjá öðrum ...

...
Mikið tap verður hjá stóru fjármálafyrirtækjunum og ýmsar sviptingar og
neikvæðar breytingar hjá bönkunum líka. Það á eftir að næða eitthvað um
Seðlabankann, ég sé stríð í kringum Davíð og fjármálamenn, mér finnst
líka hluti ríkisstjórnar blandast í það.“

 

Boldið var með ólíkindum
spennandi í morgun en endursýning á því féll niður seinnipartinn í gær
vegna hins boldsins. Taylor heldur áfram að sálgreina Nick og fær
ýmislegt miður geðfellt upp úr honum, m.a. það að mamma hans, Jackie
hin glæsta, hafi átt marga elskhuga sem greiddu fyrir atlotin. Þegar
Taylor er komin heim og les skýrslu um Nick upphátt inn á segulband
hlustar Stefanía, helsti hatursmaður Jackie, með mestu athygli, en
Taylor skildi eftir opið og sneri baki í dyrnar, svona eins og maður
gerir þegar um viðkvæmar trúnaðarupplýsingar er að ræða. Taylor tókst,
þrátt fyrir allt bótoxið, að verða skelfingu lostin á svipinn þegar
Stefanía birtist óvænt og sagði gribbulega: „Jæja, svo Jackie var
gleðikona, en áhugavert!“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?