ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Fullkomið kvöld í góðum félagsskap

01:28 › 5. október 2008

Í byrjun kvölds Tvíburarnir Sigga og Alla Hrikalega var gaman í kvöld.  Gömlu
skóla-félagarnir hafa ekkert breyst, eru alveg jafnsætir og í gamla
daga. Algjör heppni að einn jafnaldri okkar, Nonni, er safnstjóri á
Safnasvæðinu og þar héldum við okkur allan tímann. Fyrst í Stúkuhúsinu
sem er í upprunalegri mynd en var flutt á safnasvæðið, mjög flott hús.
Þar átti ég góða tíma í barnæsku og lofaði að snerta hvorki áfengi né
tóbak. Ég stóð við það til 13 ára aldurs, enda flutt af Skaganum þá.
Við fengum fínar veitingar, meira að segja sushi, og hámuðum í okkur
góðgerðir, klukkan bara rúmlega fimm og langt í matinn sjálfan.

Í kirkjugarðinum Í kirkjugarðinum við Turninn Við vorum dregin í stuttan göngutúr
í gegnum kirkjugarðinn að turninum sem S. Heiðar hélt í gamla daga að
væri kirkjuturn nema kirkjan hefði sokkið og væri neðanjarðar. Við
hlógum illgirnislega að þessum barnaskap hans þangað til við mundum að
hann er umsvifamikill í fjármálabransanum.

Svo settumst við niður í sal
Steinasafnsins og við borðfélagarnir vorum sannarlega ekki af verri
endanum. Stjarneðlisfræðingur, bankastjóri, búðareigandi, bæjarfulltrúi
og blaðamaður. Í tónlistargetrauninni seinna um kvöldið lentum við í 2.
sæti, snillingarnir, helvítið hann Bjöggi Halldórs eyðilagði allt fyrir
okkur, það var nefnilega ekki nóg að nefna Björgvin sem flytjanda,
heldur HLH, Brimkló eða Lónlí blú bojs. Samt flott hjá okkur að ná
svona góðum árangri og fyllibytturnar á þarnæsta borði fengu
rauðvínsflöskuna sem var í verðlaun.

Mjaðmahnykkirnir kenndir Úr Öskubusku Magadansmær kom og tók einn flottan dans og kenndi nokkrum úr hópnum mjaðmahnykkina góðu.Ýmsir sýndu ótrúlega glæsileg tilþrif þar.

Við vorum nokkur valin
til að leika í Öskubusku og ég var prinsinn fagri. Stjúpsystir
Öskubusku sló eftirminnilega í gegn (Halli bæjarfulltrúi) og ég á
nokkrar myndir af honum sem ég ætla að nota í fjárkúgunarskyni. Hann er
með bláu slæðuna á myndinni hérna rétt fyrir neðan. Hann neitaði að
skila skónum af Öskubusku (Gulla) og leikritið var í mikilli hættu um
tíma. Hann var alveg bráðfyndinn og stórskemmtilegur, þessi elska.

Stjúpfólkið í Öskubusku Það var knúsast og faðmast Gulli sleit dagskránni
og fólk bjó sig undir að fara að dansa. Ég laumaðist í símann og bað
erfðaprinsinn að sækja mig. Ég dansa bara við eitt lag í heimi,
Luftgitar með Johnny Triumph og Sykurmolunum, og mér fannst ólíklegt að
það væri til, alveg eins gott að fara bara heim og horfa á Lord of the
Rings III. Ég kvaddi bara Gulla, sessunaut minn, við vitum hvernig það
er þegar fólk reynir að kveðja alla á svona hittingi. Veit bara ekki
hvað hefði getað gert ef einhverjum af skólafélögunum hefði dottið sú
fásinna í hug að bjóða mér upp, það hefði verið hræðilegt!!!

Fallegt á Safnasvæðinu Humar í forrétt Frábært árgangsmót,
mun skemmtilegra og betur heppnað en síðast og maturinn frá Galito var
algjört afbragð. Allir kláruðu hverja ögn af diskunum sínum. Humar í
forrétt, kjötþrenna í aðalrétt og súkkulaðikaka með ís í eftirmat.
Kaffið var veiki hlekkurinn en maður er svo sem vanur því, mikið lagt í
allt ... nema kaffið sem er samt svo stórt atriði, hehehhe. Galito ber
held ég enga ábyrgð á því. Næsta árgangsmót verður eftir fimm ár
og ný þriggja manna nefnd var skipuð. Nú stefnum við að því að fá enn
fleiri en 35! Óli kom alla leið frá Danmörku til að vera með okkur,
Helgi og Guðlaug frá Akureyri, einn frá Ísafirði og margir frá
höfuðborgarsvæðinu. Mikið er maður annars ríkur að þekkja svona gott og
skemmtilegt fólk.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?