Svo mikið var að gera í dag að
þegar ég slökkti á tölvunni í Hálsaskógi voru aðeins fimm mínútur í
brottför 17.45-strætó frá Mosó. Ekkert hlaupahjól í grennd og því
klukkutíma bið eftir næsta vagni. Náði leið 15 hálftíma of snemma við
Vesturlandsveginn og gerði mér enga grein fyrir því þá hversu
tryllingslega mikil heppni það var. Horfði síðan ótrúlega beiskulaust á
hlýjan og notalegan Skagastrætó sem beið neðar í Háholtinu (sjá mynd),
alveg farþegalaus, Kiddi bílstjóri í pásu og ég í hlýjum sokkabuxum.
Svo kom leið 15 korteri seinna og sniglaðist þunglamalega upp brekkuna.
Út úr vagninum flæddi hópur barna, örugglega 50 stykki, ef ekki fleiri.
Vagninn hafði verið troðfullur og um leið og fækkaði í honum sá ég
nokkra saklausa farþega blása út og ná fyrri stærð. Vér Skagamenn
þjöppuðum okkur saman í eina hrúgu á stoppistöðinni og einn í hópnum
giskaði nöturlega á að þetta væri vafalaust skátahópur og við gætum
gleymt því að dorma á heimleiðinni við undirleik fréttanna, þyrftum
líklega að taka undir Kveikjum eld og Ging gang gúllí. Okkur til mikils
léttis voru þetta fótboltabörn. Ekki reyndist vera pláss fyrir þau öll
í rútunni (Skagastrætó) og voru óþekkustu börnin örugglega skilin eftir
í Háholti því að þetta reyndust vera algjör englabörn, eða svona vel
öguð. Restin af hópnum þurfti að bíða eftir næsta strætó þar sem svona
stór hópur þarf að láta vita af sér í tíma til að hægt sé að gera
ráðstafanir. Skagastrætó lýtur öðrum lögmálum en venjulegir strætóar,
eitt sæti á mann og allir í beltum. Sat við hliðina á Dipu,
badmintonþjálfara okkar Skagamanna, eiginmanni indversku
vísindakonunnar, Shymali. Við vorum menningarleg á því á heimleiðinni,
hann las Newsweek og ég fletti áhugaverðri kjarneðlisfræðibók.
Við heimkomu gat ég ekki stillt
mig um að hringja í nokkra bankamenn í vinahópnum. Jú, jú, eitthvað
meira en venjulega var um úttektir í dag en enn meira var um tilfærslur
úr sjóðum yfir á reikninga. Það hlýtur samt að vera gósentíð fyrir
innbrotsþjófa núna, meira fé en vanalega undir einhverjum koddum um
helgina.
Ég heyrði í mömmu áðan sem sagðist ekki ætla
að láta þennan múgæsing hafa áhrif á sig og skrilljarðarnir hennar eru
grafkyrrir í Landsbankanum. Annars var símtalið ansi stutt, Ég fattaði
ekki að maður hringir ekki í fólk þegar Útsvar er í gangi. Eina
sem ég get gert núna er að vonast til þess að yfirdrátturinn minn
týnist á einhvern undursamlegan hátt í öllum þessum látum. Plís, plís!
Mikið var annars gaman að Útsvari
og ég hefði rúllað upp Hringadróttinssöguspurningunum ... hmmm, nema
þeirri síðustu. Of langt síðan ég las bækurnar. Það verður gaman að
fylgjast með hinu nýja liði Skagamanna. Ásta er viss um að það fari
alla leið, eða í fyrsta sætið. Ekki dettur mér í hug að efast um orð
hennar. Hún bauð mér í gómsætt lasagna um daginn og þar smellti ég
myndum af Ösku, voffanum hennar. Ösku í körfunni og Ösku í úlpunni.
Aska á hlýrri úlpu en ég.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
