Voðalega líður tíminn hratt. Árgangsmótið
hefst eftir tæpan klukkutíma og ég var að koma úr baði. Ég hafði ætlað
mér að gera svo margt, m.a. gera meikprufu á andlitinu í gær en slíkt
förðunardót hefur ekki komið nálægt mér síðan sólbruninn ógurlegi átti
sér stað í júlí. Tek ég sénsinn og verð bólgin í framan eins og
hamstur? Eða þessi náttúrulega fegurðardís sem ég er kölluð af mönnum
sem vilja bara eitt ... selja mér tryggingar. Tókst að finna sæmileg
föt, líklega þau sömu og ég klæddist í afmælinu mínu og valkvíðinn
verður þá bara hálsfestin. Svo var ég að muna að ég á enga almennilega
spariskó. Fyrir mörgum árum keypti ég krúttlega skó í Sautján,
flatbotna svarta skreytta með hvítum steinum ... þeir eru eins og nýir,
enda hef ég bara skjögrað um á þeim svona þrisvar. Finnst varla við
hæfi að vera í strigaskóm þótt þeir heiti Sketsers-unglingaskór. Ef ég
væri af 68 kynslóðinni myndi ég dansa berfætt í kvöld en skór
78-kynslóðarinnar voru með 20 cm hælum og eru vandfundnir, enda nenni
ég varla að gnæfa yfir skólasystkinin knáu ... sem ég hlakka ógurlega
til að hitta í kvöld.
Jamm, best að taka sig til og gera sig sæta,
eins gott að ég keypti varalit í sumar af Ásdísi. Vona að kvöldið ykkar
verði ljúft og munið að alls óvíst er að nýr Simpsons-þáttur fari í
loftið. Þeir hafa svindlað svolítið á þessu síðustu vikurnar hjá Stöð 2
og sýnt gamla. Eins og við aðdáendur tökum ekki eftir því?



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
