ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Margt býr í þokunni, afleiðingar kynlífs og fleira djúsí

20:14 › 31. október 2008

Yfirleitt er sénslaust að blogga á föstudögum vegna anna í vinnunni og ég kom heldur ekki jafnsnemma og vanalega í vinnuna. Ég var búin að lofa djörfum færslum hér á dv-blogginu og það eina sem mér dettur í hug er að birta mynd af Ylfu Ósk Úlfarsdóttur sem eignaðist sex hvolpa á dögunum eftir unaðsstundir (kynlíf) með akureyskum hundi og stóðu þær heila helgi. Helgarnar í himnaríki fara bara í lestur og sjónvarpsgláp. Ylfa situr svo sem uppi með afleiðingarnar, ekki í 30 ár, heldur 2-3 mánuði.

Fékk far með vinkonu á Skagann seinnipartinn
, eða undir kl. 18, og var ógnvekjandi að keyra þetta í þokunni. Við heyrðum reglulega glamur í hlekkjum sjóræningja í gegnum malið í útvarpinu. Vinkonan tjáði mér að hún ætlaði ekki að gefa neinar jólagjafir. Hún vinnur eins og brjálæðingur í tveimur vinnum til að halda íbúðinni og bílnum. Íhugar að flytja úr landi, nennir þessu ekki lengur. Sem betur fer á hún athvarf í útlöndum hjá ættingja sem þráir ekkert heitara en að fá hana til sín. Næg vinna, hægt að redda húsnæði.

Sé að ég hef lækkað allsvakalega í tign (á bloggaralistanum) hér á dv-blogginu eftir kveðjufærsluna mína á Moggablogginu í gær. Undarleg tilviljun.Reynir sagði að ég yrði "drottningin" þeirra (ég fell alltaf fyrir fagurgala) og allt yrði gert fyrir mig, nema kannski koma nakinn fram. Þetta er eins og hjónaband, um leið og búið er að hefta mann niður þá er maður nógu góður til að þvo sokkana. Hmmmm.

Erfðaprinsinn er að elda ódýran pastarétt, örugglega með þriðja
kryddinu og msg og arseniki ... en pakkinn kostaði bara 150 kall og
þetta er saðsamur fjandi. Til að gera þennan föstudag sjúklega góðan verður horft á Útsvar og síðan langar mig að klára strætóbókina, Sólkross eftir Óttar M. Norðfjörð. Fyrst þegar ég sá hana hugsaði ég með mér: Æ, hvað er hægt að gera skemmtilegt úr einhverju fornsögulegu íslensku? Svo byrjaði ég á bókinni, tvö morð á fyrstu síðu í fyrsta kafla og þetta hélt bara áfram að vera skemmtilegt. Er kominá bls. 42, og er mjög spennt að halda áfram.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?