Í matsalnum í hádeginu var boðið upp á soðinn fisk, kartöflur og hamsatólg (of oll pleisis). Vegna matarpyntinga í æsku (man eftir mér þrjóskri aleinni í eftirsetu við matarborðið reyna að pína í mig kaldri ýsu með hömsum) ákvað ég að taka bernskuna í þetta, svona eins og bernskan hefði átt að vera, heima og í sveitinni. Stappaði ýsu og kartöflum saman og fékk mér tómatsósu með. Algjört æði.
Var komin korter yfir fjögur í Ártún og beið þar eftir leið 15 sem kom á réttum tíma. Skildi ekkert í því hvers vegna vagninn beið og beið ... en svo birtust tíu farþegar smám saman úr öðrum vögnum sem voru seinir. Tafði okkur um heilar tíu mínútur. Bílstjórinn ók hratt upp í Mosó, svo hratt að sessunautur minn sagði flissandi að við þyrftum sannarlega ekki að fara að æfa magadans, enda nokkur hringtorg sem sáu um þjálfunina. Ef viðmælandi minn einn úr Vikunni hefur rétt fyrir sér gætum við báðar orðið óléttar þar sem frjósemi á víst að fylgja magadansi.
Í strætó 27 hlammaði ég mér hjá Sigþóru og naut þess að sitja þétt upp við úlpuna hennar hlýju. Ég vel ávallt sessunauta eftir yfirhöfnum, a.m.k. yfir vetrartímann. Sigþóra sagði mér að hún hefði steinsofnað í strætó í morgun, dreymt að hún væri að borða eitthvað gott og vaknaði með galopinn munninn ... hún harðbannaði mér að blogga um þetta, ormurinn.
Úlli kokkur er hjá Jóa Fel núna en Úlli er orðinn stoltur "afi" sex hvolpa sem Ylfa Ósk eignaðist í gær. Viss um að allur harðfiskurinn sem ég hef stolið frá Hrund samstarfskonu hafi gert henni gott.
Svo er það bara Doktor House.
Blogg
Matarstrætóúllablogg
20:29 › 30. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
