ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Lestur, vinna, spælandi kökuferð og blessað boldið

00:16 › 30. október 2008

Göngin Hér í himnaríki hefur bara
verið unnið og lesið. Las skemmtilega barnabók, svolítið óvenjulega,
Funhildur heitir hún, er búin með Guðmund Andra, dásamleg bók alveg, er
svo með tvær í takinu núna, glæpasöguna góðu eftir Jón Hall og
ævintýralega unglingabók sem heitir Göngin. Ég hef varla tíma til að
vera til, hvað þá hafa magasár yfir kreppunni. Aumingja sjónvarpið, ég
vanræki það þvílíkt, eins og bloggið, en ekki boldið. Og auðvitað ekki
Kiljuna sem var mjög skemmtileg að vanda í kvöld.

Kaka Svo var ég aðeins á ferðinni
í dag með ljósmyndara sem myndaði glæstar tertur í kökublaðið okkar sem
er í undirbúningi en þar sem voru döðlur í öllum kökunum og hnetur,
möndlur og rúsínur, ásamt döðlum í einni var þetta ekki fitandi ferð.
Síður en svo, eiginlega bara frekar spælandi kökuferð.

 

Taylor Litla stúlkan með engilsásjónuna,
Alexandría, eyðilagði brúðkaup föður síns, Thorne, og væntanlegrar
stjúpmóður, geðlæknisins Taylor, (sem drap óvart mömmu hennar með því
að keyra drukkin á hana) með því að klippa brúðarkjólinn í tætlur sem
fattaðist nokkrum mínútum fyrir athöfnina. Hún fékk faðmlag fyrir og
var sagt að hún væri bara ekki tilbúin. Ef þarna er ekki verið að búa
til fjöldamorðingja framtíðar þá veit ég ekki hvað.
Forrester-fjölskyldan hélt blaðamannafund og sagði frá nýstofnaða
tískufyrirtækinu og Nick, sem á núna gamla Forrester-fyrirtækið, horfði
stjarfur af reiði á þetta í sjónvarpinu. Hann sagði mömmu sinni að hann
ætlaði að ná sér niðri á þeim með afdrifaríkum hætti. Svo man ég
eiginlega ekki meira. Nú er það bara upp í rúm að sofa og hlakka til
spennandi strætóferðar í fyrramálið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?