ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Skrýtinn dagur - úttektir hjá sparifjáreigendum

16:17 › 3. október 2008



Hér í vinnunni hefur ríkt skrýtið andrúmsloft í dag, eins og örugglega víðar í þjóðfélaginu. Sögusagnir um hrun Landsbankans ganga fjöllunum hærra og einn samstarfsmaður minn frétti að heilir 2 milljarðar hefðu verið teknir út bara í Landsbankanum í Mjódd í dag ... af hræddu fólki sem vill frekar hafa peningana undir koddanum en mögulega tapa þeim. Veit um einn karl sem tók reyndar allt sitt út í dag, en ekki þó í útibúinu í Mjódd en í öðru Landsbankaútibúi. Kannski óþarfapanik, verst að enginn veit neitt og ráðamenn vilja sem minnst segja og bara þegja sem gerir almenning enn hræddari.


Einhver sagði í matsalnum (fínasti matur í dag) að landið hefði ekki efni á bensíni nema í stuttan tíma í viðbót, síðan fengist ekki meira keypt inn, og þá þurfum við að fara að labba í vinnuna. Ég á líklega óhægt um vik en Eiríkur Jónsson sagði að nú yrði líklega leyft í fyrsta sinn síðan 11. júlí 1999 að fara fótgangandi í gegnum Hvalfjarðargöngin. Ja, eða á hlaupahjóli, sem væri sniðugra, bætti snillingurinn við. Jamm, hvaða stórfréttir ætli skelli á okkur um helgina? Eða á mánudaginn?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?