ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Ódýrasti kvöldmatur lífs míns, "ósvífni" leiðar 15 og jólagjafapælingar ...

11:21 › 3. október 2008

VekjaraklukkaVaknaði við að erfðaprinsinn gargaði úr suðausturhluta himnaríkis: „Viltu slökkva á vekjaraklukkunniiiiii!“ Takk, erfðaprins. Klukkan var við eyrað á mér og hafði hamast í fimm mínútur án árangurs. Var óumræðilega þakklát sjálfri mér fyrir að hafa tekið til fatnað í gærkvöldi. Tók meira að segja fram gammósíurnar (úr Ellingsen) sem ég keypti Frostaveturinn mikla 2007-2008 og héldu í mér lífinu þá. Þetta voru stórkostlegar aðgerðir hjá mér en ... ég gleymdi heima trefli 2, eða fjólubláa ofurhlýja sjalinu sem Hilda gaf mér í jólagjöf eitt árið, og var samt búin að taka hann til. Það hefði gert gæfumuninn. Sumir kunna að klæða sigÞegar við brunuðum að Háholtinu í Mosó horfðum við á leið 15 strunsa áfram, beint fyrir framan nefið/húddið á okkur og bílstjórinn okkar (Skúli almáttugur) kallaði til farþeganna til að koma í veg fyrir fjöldatrylling: „Ég skal fara alla leið í Ártún.“ Hann sagði að það myndi seinka leið 15 allt of mikið að taka 60 of seina Skagamenn upp í þótt léttir væru á fæti. Í þessarri hálku og ekki vetrardekkjum hefði það verið martröð. Við urðum reyndar á undan leið 15 þangað, enda gátum við farið beinustu leið eftir Vesturlandsveginum! Bílarnir skrönsuðu sumir til fyrir framan okkur ... úúúú. Nýbúið var að moka og sandbera milljóntröppurnar í Ártúni og þar fyrir utan var ég á nýju skónum mínum sem Ásta segir að séu unglingaskór, Sketzter, eitthvað ..., sem stóðust öll próf í fyrstu hálku vetrarins. Allir mættu frekar seint í vinnuna ... strætófólkið kom allt á réttum tíma. Sigurður Mikael, skaðræðisbrekkuhetjan af DV, tók vegkantinn háa og hættulega við Vesturlandsveginn, með trukki, fór í fótspor annars sem skeiðaði þarna niður og sýndi snilldarkúnstir við að halda sér uppistandandi í þessu þverhnípi þarna ... macaronicheeseJamm, þegar ammrísku dagarnir voru í Hagkaup um daginn keypti ég svona pakkadæmi, ammrískar makkarónur og ost, á 50 kall pakkann. Hef aldrei smakkað svona og ákvað að prófa, skellti 3 pökkum í innkaupakörfuna og fattaði í gær hvers vegna þetta var svona ódýrt ... það er að renna út á tíma. Veit samt að hlutir duga mun lengur en dagsetningarnar segja til um. Þetta var ekkert svo vont og við erfðaprins borðuðum helminginn úr pottinum og urðum pakksödd. Afgangur eftir til að borða sig aftur södd í kvöld. Mjólkurskvetta og smjörklípa fóru út í svo kannski hafa þessar fjórar máltíðir kostað 60-70 kall. Ekki sérlega hollur matur, held ég, en fyllir vel og uppfyllir líka það að kosta ekki mikið. Svo er bara að fara að stela slátri og lifrarbuffi úr frystikistum sparsömu og myndarlegu vina minna. Litlu í einu þar sem frystihólfið mitt er frekar lítið! Óska ykkur gleðilegs dags og farsældar um ókomið kvöld!JólagjafirP.s. Samtal tveggja vinkvenna í gærkvöldi (sönn og sannreynd frásögn frá fyrstu hendi).Kona 1: „Er ég klikkuð ef ég byrja að pakka inn jólagjöfunum núna?“ Kona 2: „Nei, alls ekki, það er byrjað að snjóa!“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?