ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Hviður við Lómagnúp, jólabækur + konur&hálka-heilkennið

08:01 › 24. október 2008

Það er ekkert hægt að leika á þessa vopnuðu öryggisverði sem passa upp á allt hér í Hálsaskógi. Ég var seinna á ferðinni í morgun en í gærmorgun en samt var ég yfirbuguð, gösuð og sett í járn á meðan vegabréfið mitt var skoðað. „Ó, ertu Íslendingur?“ sagði öryggisvörðurinn með viðbjóði um leið og hann handjárnaði okkur saman, enda hann sjálfur Íslendingur. Það var bara rétt byrjunin á afar krúttlegri morgunstund..


Ég hef verið dugleg að lesa jólabækurnar, búin með Garðinn eftir Gerði Kristnýju (æði), Ódáðahraun eftir Stefán Mána (æði), Sköpunina eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur (æði) og líst ótrúlega vel á Varginn eftir Jón Hall Stefánsson sem ég er nýbyrjuð á. Var lögst upp í rúm þegar ég fattaði að Vargurinn var í öðru herbergi (það eru um 20 herbergi í himnaríki) og greip næstu bók ... Áfrýjunina eftir John Grisham ... já, Grisham karlinn á íslensku aftur eftir langt hlé, gaman, gaman. Gleymi því ekki hvað mér fannst Fyrirtækið spennandi bók á sínum tíma og myndin The Firm líka. Þessi lofar góðu. Einn bloggvinur minn þýddi hana, held ég.


Við Ásta vorum á rúntinum í gærkvöldi við Lómagnúp. Mikið fjör og læti og ef eitthvað hefur fengið mig til að ákvaða að halda áfram í fitun var það reynsla okkar þar. Bíllinn hélst alveg á hjólunum þrátt fyrir ansi miklar hviður (sjá mynd) og þökkum við það eingöngu taumlausu áti eftir að kreppan skall á. Þótt Ásta sé tággrönn er þungt í henni pundið og hún er enginn væskill ... nema kannski í morgun. Hún sagði í gegnum samanbitnar varirnar þegar við ókum Kjalarnesið í innan við 20 m/sek í hviðum, sem er EKKERT! „Ja, ef það væri hálka núna værum við ekki hér!“ Ég öskraði tryllt á hana og spurði: „Hvað er þetta eiginlega með konur og hálku? Eruð þið kerlingarnar búnar að láta heilaþvo ykkur þannig að aðeins karlar geti keyrt í erfiðum aðstæðum?“ Ég fann hvernig röddin varð dýpri og mér fór að vaxa skegg.
Ásta svaraði þessu ekki, heldur fór að tala um afmæli sem hún er að fara í í kvöld hjá einum af rithöfundum þjóðarinnar. Mér er EKKI boðið.


Jæja, hættið að trufla mig frá vinnunni, ... óska þess hjartanlega að dagurinn ykkar verði hreint út sagt frábær, fullur af fyrirheitum, daðri og dufli ... múahahahah



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?