Efast um að það finnist samviskusamari
starfskrafur en ég ... hálsbólgan lét ekki á sér kræla fyrr en búið var
að lesa síðupróförk af næsta blaði og vinnudeginum lokið. Frétti að
tveir strætisvagnar hefðu lent í samstuði á Hlemmi vegna hálkunnar og
við það hafi tímaáætlun þeirra riðlast. Við í Skagastrætó bjuggumst
ekki við að komast fyrr en í fyrsta lagi frá Mosó um sexleytið, eða
korteri of seint. Svo fór nú ekki og Sigþóra og fleiri farþegar komu á
hárréttum tíma.Ég fékk far með einkabíl, hefði boðið Sigþóru með (hún
vinnur í næsta húsi) ef ég hefði ekki haldið að hún færi með 16.45
ferðinni.
Rás 2 var eitthvað óþæg á leiðinni
og Skúli stillti af sexfréttunum yfir á Bylgjuna. Í göngunum og alla
leið á Skagann var spurningakeppni í gangi og hlustendur voru rosalega
vitlausir miðað við okkur Skúla. Mér skjátlaðist bara einu sinni,
ruglaði saman Hollandi og Austurríki en hver gerir það ekki? Glerhálka
er í Reykjavík og viti menn, líka hér á Skaganum.
Nú er bara að borða hvítlauk, drekka
sólhattsuppleysanlega C-vítamínpillu í vatni og fara snemma að sofa. Þá
kemst ég vonandi í bæinn fyrir kl. 16 á morgun og í útskriftarhóf elsku
frænku minnar.
Það þarf ekkert að efla löggæsluna vegna yfirvofandi byltingar
á Íslandi kl. 16 á morgun. Borgarstjórn kom með snilldarbragð til að
fækka okkur öreigunum á Austurvelli ... á morgun verður nefnilega margt
við að vera, t.d. ókeypis í Húsdýragarðinn og skemmtilegar uppákomur
víðs vegar um borgina. Þetta er engin venjuleg bardagalist, bara snilld
sem sparar bæði gas og mannskap.
Jæja, farin að sofa úr mér veikindin.
Útsvar búið og ég plata bara erfðaprinsinn til að fylgjast með Taggart
fyrir mig seinna í kvöld. Vona að ykkur dreymi vel í nótt.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
