Einn besti bílstjóri sem ég þekki hringdi í mig kl. 6.15 í morgun. „Ég er að hugsa um að leggja í hann í hálkunni og rokinu,“ sagði hann (Ásta) „láttu þér samt ekkert bregða þótt ég snúi við ef mér líst ekki á blikuna!“ Ég féllst á þessa afarkosti og bjó til óvenjuljúffenga latte-drykki sem ég lagði alla alúð í til að efla hetjulund Ástu. Það virkaði. Sjöfréttir hófust þegar við vorum á móts við KFC í Mosó en í venjulegri færð erum við komnar næstum alla leið til Reykjavíkur á þeim tíma. Við skemmtum okkur konunglega yfir Heimi og Kollu á Bylgjunni en réttlætiskennd Heimis er mikil og hávær þessa dagana. Honum ofbýður t.d. að fólki í vanskilum sé ekki hjálpað af bönkunum, heldur fá þeir einir hjálp sem standa í skilum ... óháð því hvort "vanskilafólkið" hafi jafnvel verið atvinnulaust, glímt við veikindi eða annað. Voðalega er ég sammála honum. Áfram Heimir! Hann ætlar að halda áfram á milljón að vera reiður!
Það var skafrenningur á Kjalarnesi en við fundum lítið fyrir hálku, enda á nýjum vetrardekkjum. Þegar við keyrðum að Hálsaskógi var reyndar komin stórhríð, ég taldi alveg milljón snjókorn á sekúndu, skaflar byrjaðir að myndast og læti. Frekar óvænt, er það ekki? Mig minnti að veðurfræðingurinn minn hefði sagt í gær að vonda veðrið kæmi ekki fyrr en seinnipartinn á morgun. Hmmmm.
MILLJÓNASTA flettingin á Moggablogginu mínu verður í dag nema það skelli á bilun og vonandi láta allir mig vita sem komast nálægt því að ná þeirri tölu. Sá sem kemst næst henni fær verðlaun! Jafnvel skútuferð um heiminn, Rolex-úr, Louis Vuitton-ferðatöskusett eða annað sem þolinmóðir lesendur bloggsins eiga skilið.
Nú eru MILLJÓN spólandi bílar í Lynghálsinum, allt stíflað, enginn kemst upp brekkuna nema fuglinn fljúgandi! Alla vega fimm bílar stífla þessa stundina, eða upp úr hálfníu!
Óska ykkur yndislegs dags í þessu hvíta þarna, og þá er ég auðvitað að tala um snjóinn.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
