Ég á mér uppljóstrara í einu af fínu hverfunum í Reykjavík. Hann
sagði frétta- og slúðursíðu himnaríkis að nú um nokkurt skeið hefði
verið vakt við villu eins útrásarmannsins. Eins og það væri líklegt að
Íslendingar nenntu að aka jafnvel langar leiðir til að ráðast á hús
þegar bensínið er svona dýrt og mun þægilegra að skammast bara á
blogginu. Fyrst var þessi ómerkti öryggisbíll staðsettur beint fyrir
framan húsið en nokkrum dögum síðan var hann færður aðeins fjær til að
þetta væri ekki jafnáberandi, svo er líka skipt um bíla en þessi oft og
tíðum næturgöltur og uppljóstrari lætur ekki leika á sig. Hann veit
samt ekki hvort verðirnir séu búnir vopnum ... Fyrir nokkrum mánuðum
var þessi nágranni útrásarmannsins (uppljóstrari minn) úti í garði hjá
sér þegar hann sá póstbíl koma að villunni, bílstjóra hlaupa út, skella
einhverju inn um lúguna og rjúka á brott, svona eins og þessir rösku
sendlar hjá Póstinum athafna sig vanalega. Þjófavarnarkerfi fór í gang
svo glumdi í hverfinu og innan við mínútu síðar komu tveir öryggisbíla
koma á ofsahraða eftir götunni. Eins gott að blómin á þessu heimili
hafi ekki hreyft sig hratt í gegnum tíðina ... Þarna í hverfinu er
talað um að eigandi villunnar sofi í svokölluðu Panic Room. Rosalega
hlýtur að taka á að vera ríkur, það er ekki bara dans á rósum
greinilega. Mér finnst persónulega alveg nóg að hafa tvo brjálaða ketti
sem þjófavörn, plús góðan lás og skólastrák mikið heima ... en ég er
líka svo lítillát og hér er vissulega fátt sem freistar þjófa nema
kannski hjarta mitt ...
Ísland í dag á Stöð 2
reyndi að kenna okkur lýðnum hvernig beina ætti reiðinni í réttan
farveg ... prestur og geðlæknir&áfallasálfræðingur spurðir
spjörunum úr. Pálmi Matthíasson mælti með æðruleysisbæninni en Ólafur
Már Ævarsson sagði m.a. mikilvægt að vanda samskiptin. Á undan þættinum
mátti sjá langa og voða sæta auglýsingu frá lífeyrissjóðnum mínum,
„Saman byggjum við nýja framtíð.“ Ég skil ekki tilganginn
með henni og hef ekki samþykkt að dýrmætum eftirlaunasjóði mínum sé
eytt í rándýrar sjónvarpsauglýsingar.
Það kom hraðskreiður póstbíll
upp að himnaríki í kvöld, hress og rösk stelpa færði mér síðbúna
afmælisgjöf frá elskunni henni Dobbu og ekkert þjófavarnarkerfi fór í
gang. Flott snyrtitaska,eða frekar kúl samkvæmistaska og svartur, hlýr
kragi með silfurnælu framan á. Ég á eftir að líta mjög glæsilega og
ríkmannlega út í kreppunni og einhverjir eiga án efa eftir að reyna að
hrinda mér út úr matarbiðröðunum eða rispa mig þótt ég verði með
fullgilda skömmtunarseðla.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
