ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Af bossum og boldi ...

10:39 › 21. október 2008

Tókst að klára hina hröðu, grimmu
og spennandi bók Stefáns Mána í gær. Fyndið hvað sú bók hittir í mark
með efnistökum, þótt glæpir eigi svo sem alltaf við ... Verðbréfasukk
og –svínarí, hvað hefur ekki komið á daginn?

Rass Töru Reid Ég tek virkilega nærri mér hvernig rassinn á Töru Reid er orðinn. Það stendur í frétt á www.dv.is
að rass Töru Reid veki óhug. Ég er líka þræll fullkomins útlits og skil
vel að heimurinn sé í uppnámi. Svona lætur maður ekki gerast með
rassinn á sér. Hver er annars þessi Tara Reid?

Það styttist óðum í milljónustu flettinguna
mína á Moggabloggi. Ég veit ekki hvaða verðlaun eru nógu góð fyrir þann
sem kemst næst því að verða fletting númer milljón ... en vona að
viðkomandi láti vita í athugasemdakerfinu. Lofa djúsí verðlaunum,
ekkert: Gönguferð fyrir einn yfir hálendið ... þú mátt leggja af stað núna-dæmi! Ekki slæmt ef króna hefði fengist fyrir hverja flettingu en ég set að vanda allt mitt traust á bingólottó.

Það hefur færst í aukana
að bloggvinir láti aðra bloggvini vita í innankerfispósti mbl þegar þeir
hafa skrifað enn eina tímamótafærsluna en mér dettur ekki í hug að
auðvelda bloggvinum mínum þetta, krefst þess að þið hafið svolítið
fyrir því að leita mig uppi og lesa ódauðleg skrif mín um
strætisvagnaferðir og bold. Múahahaha!

Ridge Boldið var djúsí í morgun
vanda. Eric heimsótti Jackie, miður sín yfir því hvernig kona hans,
Stefanía, hefur leikið hana, eða opinberað fyrir alheimi að Jackie vann
fyrir sér sem gleðikona í gamla daga. Vopnin hafa snúist í höndum
Stefaníu og Nick neitar nú alfarið að selja fyrirtækið til
Forresteranna aftur. Hann var orðinn pínu volgur varðandi söluna sem er
geðlækninum Taylor og tímunum með henni að þakka en nú er allt lok, lok
og læs. Hope litla, dóttir Brooke og Deacon (fyrrum tengdasonar Brooke)
og Alexandria litla, dóttir Thorne og Dörlu heitinnar (sem Taylor ók á
af slysni) leika sér saman og Hope segir vinkonu sinni að Taylor, sem
nú er að fara að giftast pabba hennar og gerast góða stjúpan, hafi
keyrt á Dörlu. Litla stúlkan er í miklu uppnámi, enda gekk henni svo
vel að díla við móðurmissinn með hjálp geðlæknisins geðþekka, Taylor,
sem nú reynist vera „vondikarlinn“ sem orsakaði lát móður hennar þótt
algjörlega óvart hefði verið ... Jamm, alltaf mikið að gerast í
boldinu. Annars er Taylor farin að horfa með áfergju á Nick, nú er hann
á lausu eftir að Brooke fór aftur til Ridge sem er fyrrum eiginmaður
Taylor. Hvað verður nú um Tómas og tvíburana?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?