ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Fokið í bæinn, gleðiefni, fitubollurannsókn og fleira

08:22 › 20. október 2008

Það hvein og brast í öllu í himnaríki þegar vekjaraklukkan hringdi kl. 6 í morgun. Rosalega langaði mig að sofa lengur, enda hafði ég ekki tímt að sleppa bókinni hans Stefáns Mána fyrr en klukkan var að verða eitt í nótt ... og er að verða búin með hana. Á mér sannaðist það sem sagt er um mömmur, að þegar þeim sjálfum er kalt skipa þær börnunum sínum til að fara í hlýrri peysu, húfu og vettlinga en ég breiddi aukateppi yfir erfðaprinsinn og lokaði gluggunum, það var hrollkalt í himnaríki. Dreif mig í tölvuna og sá að hviðurnar á Kjalarnesi dingluðu þetta 35-40 m/sek ... en vindáttin var þó vel hagstæð, eða norðvestlæg, austlægu kvikindin eru verst.

Við Ásta brunuðum því með latte í hönd eftir þjóðveginum og hún með óperusöngvarann Óskar Pétursson á hæsta syngjandi POPPlög! Ég reyndi að fitja upp á samræðum til að hún lækkaði og sagði lágt við hana: „Ég er að fara í hóf á laugardaginn!“ „HÓF? Mikið er mín hátíðleg í dag,“ sagði Ásta og barði mig með í andlitið með saltfiski ... en lækkaði í tónlistinni. Þetta var ótrúlega hressandi uppákoma, ég glaðvaknaði alveg. Við sáum jeppa ofan í skurði á Kjalarnesinu, skömmu síðar fórum við framúr stórum trukki og mættum svo Skúlastrætó í Kollafirðinum á leið á Skagann. „Þessi hefur fokið út af,“ sagði Ásta greindarlega. „Ja, ertu viss?“ spurði fíflið ég. „Ekki fauk stóri trukkurinn og ekki heldur strætó ... báðir ættu að taka mikinn vind á sig,“ bætti ég heimskulega við. „Hvaða erindi á þessi bíll ofan í skurði?“ heyrðist úr ökumannssætinu og andrúmsloftið hrímaði vegna heimsku minnar. Það eina sem ég gat sagt var: „Hehe, ég var auðvitað að djóka!“ Og slapp með skrekkinn!


Enn ein spennandi rannsóknin hefur litið dagsins ljós, heyrði ég á Bylgjunni í morgun. Fitubollur þurfa, samkvæmt henni, að borða meira en mjónustangir til að fá gleði og ánægju (dópamín) út úr máltíðinni. Ég held að það ætti frekar að kíkja á samsetningu matarins hjá fólki yfir kjörþyngd, ekki magnið. Sem minnir mig á að það verða kjötbollur í matinn í hádeginu. Steingleymdi að kippa með mér ávexti í morgun ... morgunmatur hér hefst kl. 8.30, ég veit hver fær sér bláberjabúst í fernu og banana.


Skyldi það vera rétt sem ég heyrði og slúðraði um á blogginu um daginn að nýju bankastýrulaunin væru 950 þúsund á mánuði? Ef það kemur í ljós munið þá hver skúbbaði með þetta!!! Þetta þykja náttúrlega hlægilega lág laun miðað við það sem hefur verið og ekki gaman að láta hlæja að sér fyrir að sætta sig við þetta.


Munið að hafa það gott í dag, það er hægt að gleðjast yfir mörgu. Ingibjörg Sólrún er komin tvíefld til landsins, ráðamenn segja að svar vegna lána komi á fimmtudaginn, ekki á að taka neinum afarkostum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, heyrist mér ... og síðast en ekki síst: Jón Ólafsson er kominn til landsins og ætlar að bjarga okkur! Sjá www.dv.is


P.s. Litla fallega stúlkan sem ég fékk í afmælisgjöf 12. ágúst sl., munaði bara 10 mínútum að hún yrði nákvæmlega 50 árum yngri en ég, var skírð á laugardaginn og heitir nú Ragnheiður, kölluð Gurrí (held ég). Flott nafn, sætt barn, æðislegur afmælisdagur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?