ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Reykt ýsa, heimsókn til Línu og jólastemmning í boldinu

18:31 › 2. október 2008

Ýsa Það fór sem eldur í sinu í vinnunni að það yrði reykt ýsa í hádeginu, risotto sem grænmetisréttur
og sitt sýndist hverjum. Nokkrir hlupu upp í Taí-matstofu og var ég ein
af þeim. Fékk kúfaðan disk af alls kyns gómsætum taílenskum réttum og
borgaði 1.000 kall fyrir. Alveg þess virði til að sleppa við
ýsuhelvítið og halda samt fullum starfskröftum.

Ella, Inga og Lína Kíkti á Línu við heimkomu
og var mikið fjör á heimilinu að vanda. Ella og Kjartan kíktu með Eygló
skömmu seinna. Strákarnir „mínir“ eru í skólanum á fullu og líkar mjög
vel, litla snúllan er ekki jafnhress þegar hún þarf að kveðja mömmu í
leikskólanum en það er bara eðlilegt, Ella sagði henni að hálfum mánuði
eftir að Eygló hennar byrjað í leikskólanum hefði hún einn daginn sagt
bless, ekkert vesen lengur og þá var það eflaust mamman sem skældi af
söknuði. Nadeen á viku í það. Lína er byrjuð í íslenskunámi líka og
segir það mjög skemmtilegt. Hún er að læra muninn á framburðinum á
sérhljóðunum og ... úff, hvað íslenskan er nú flókin fyrir útlendinga,
sá það eitt augnablik með augum hennar. Framburðurinn mun samt
greinilega ekki vefjast mikið þeim, fannst mikið til um þegar
strákarnir spurðu mig á góðri íslensku: „Hvað heitir þú?“ Svo spurði ég
þá að nafni og þeir svöruðu: „Ég heiti ....“ og svo komu nöfnin.
Strákarnir eru bæði í sundi og fótbolta, alsælir. Þeir fóru einmitt í
sund áðan með vinum sínum. Lína bauð okkur upp á safa og nammi, núna er
ramadan búið og þriggja daga „jól“ standa yfir. Þegar við kvöddum var
Inga einmitt að koma heim úr vinnunni, en hún býr í sama húsi og Lína. Myndin hér að ofan er af Ellu, Ingu og Línu, tekin um daginn þegar túlkarnir komu og við gátum talað saman af hjartans lyst, engin leikræn þjáning þar á ferð.

Vertu úti, kerling Nú eru líka jólin
hjá Forrester-fjölskyldunni og Stefanía heldur hjartnæma ræðu um leið
og hún segir „Gjörsovel“. Hún talar um fjölskyldugildin og þá ást sem
hún beri til barna sinna, eiginmanns og annarra ástvina. Þá hringir
dyrabjallan. Úti stendur móðir hennar og óskar henni gleðilegra jóla.
„Hvað ert þú að gera hér?“ spyr Stefanía og útihurðin hrímar. „Jólin
eru tími fjölskyldunnar,“ segir mamma hennar ámátlega. „Vertu úti!“
skipar Stefanía og er algjörlega ósveigjanleg. Fjölskylda er ekki sama
og fjölskylda.

Darla heitin og Thorne Andi Dörlu heitinnar er á sveimi
í kringum Thorne og littlu dóttluna og er Darla heitin alsæl með hversu
hamingjurík jól dóttir hennar upplifir. Eftir þennan þátt er greinilegt
að það er líf eftir dauðann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?