Aftur bílfar í morgun sem var dásamlegt í kuldanum sem var þó ögn minni en í gær. Kannski maður sé bara farinn að venjast honum. Strax við sætukarlastoppistöðina byrjaði Ásta að hundskamma MIG fyrir ástandið í þjóðfélaginu. Hún horfði ásakandi á mig, en ekki VEGINN, þegar hún talaði um uppsagnirnar í byggingariðnaðinum, meðferðina á Glitnismönnum og önnur stórmál. Ég náttúrlega sturlaðist og benti henni ókurteislega á að flest mál hefðu tvær hliðar og ég myndi nú fara varlega í að gleypa allar samsæriskenningar strax. Okkur ætti nú að hafa lærst að trúa ekki orði af því sem heyrðist t.d. í Kastljósi, sæist í DV, Lögbirtingarblaðinu og Morgunblaðinu eða kæmi frá forsætisráðuneytinu. Við vorum farnar að slást í Kollafirði og ef Ásta hefði ekki sett plötuna hans Páls Óskars í græjurnar í bílnum veit ég ekki hvernig þetta hefði endað. Það er svo skemmtilegt að vera ósammála síðasta ræðumanni. Ef stjörnumerkjasjúk vinkona mín vissi af þessu myndi hún segja að ég væri Vog. Það er nú ekki rétt, ég er virðulegt Ljón.Þetta gæti alveg verið sönn saga hjá mér, nú eru öll skúmaskot notuð til að ræða ástandið í þjóðfélaginu, meira að segja bíll á leiðinni frá Akranesi til Reykjavíkur klukkan rúmlega hálfsjö að morgni þegar allt heiðarlegt fólk steinsefur og það með peningana undir koddanum. Nei, við Ásta rifumst ekkert í morgun nema hún spurði mig hvort ég væri Sjálfstæðismaður! Ég argaði úr hlátri og sagðist vera ópólitísk, hefði reyndar kosið alla flokka einhvern tíma og væri einna montnust af kjöri mínu á Framsókn á níunda áratug síðustu aldar, þegar sómakonan Ingibjörg Pálmadóttir komst að á Skaganum og varð síðar heilbrigðisráðherra sem leið yfir í fangið á Össuri, þarna þið munið. Fannst líka gaman að kjósa Vigdísi Finnbogadóttur sem forseta og Ingibjörgu Sólrúnu sem borgarstjóra ... Jú, auðvitað hef ég kosið karla líka, enda eru karlmenn upp til hópa gjörsamlega frábærir. Skrapp í Kaffitár í morgun með morgunhressri vinkonu og keypti latte, líka handa samstarfskonu minni sem kemur alltaf til vinnu kl. 8 á morgnana. Hún var ögn seinni til vinnu en vanalega, þurfti ein að standa í því að koma fjórum börnum í skóla og leikskóla. Þetta er reyndar svo gott kaffi að það er hægt að drekka það volgt, jafnvel kalt. Svo verður það hádegisverður með annarri vinkonu á Asíustaðnum hérna í Hálsaskógi. Þvílíkt lúxuslíf. Tek það fram að kúffullur diskur af þremur réttum að eigin vali kostar 1.000 kall sem er oggulítið meira en máltíðin kostar í mötuneytinu. 
Séð og heyrt var að koma í hús ... Jón Ólafsson, vatnskóngur og athafnamaður, er á lausu, en Mummi í Mótorsmiðjunni er genginn út ... enn og aftur. Nichole Kidman eignaðist dóttur á dögunum og þakkar það töfravatni, eða sundspretti sem hún tók í Kununurra-vatni í Ástalíu ... Ég hélt einhvern veginn að kynlíf væri galdurinn við að búa til börn. Dóttirin heitir frekar sakleysislegu nafni, svona miðað við tilgerðarlegar og stórundarlegar epla- og appelsínunafngjafir þekkta fólksins. Hún ber nafnið Sunday Rose. Svo er dóttir Kate og Tom, litla Suri Cruise (2), víst mjög einmana og vinalaus, hefur ekki einu sinni lært að deila dótinu sínu með öðrum börnum. Eiríkur Jónsson horfði á Opruh Winfrey í gærkvöldi og það finnst mér langstærsta frétt dagsins. Þetta er aðeins of "kvenlegur" þáttur fyrir mig, hvað er í gangi með hann Eirík?Vikan er helguð brjóstakrabbameini, eða forsíðuviðtalið og aðeins fleira, við gerum þetta alltaf einu sinni á ári, gott málefni til að vekja athygli á. Forsíðumyndin er af konu, sem er ber að ofan, en annað brjóstið var tekið af henni, andlitið ekki sýnt. Foríðuviðtalið við hressa ömmu og Í Galdrahorninu eru nokkrar Feng Shui-ráðleggingar, t.d. hvernig á að laða að sér velmegun ... finna ástina, finna góða vinnu og breyttu óvini í vin og hræðilegum nágranna í fínan granna ... hehehhe. Alltaf gaman að Feng Shui. Lífsreynslusagan er mjög djúsí, segir frá konu sem dreymdi skrýtinn draum þegar hún var 14 ára, eða að hún sæti í farþegasætinu við hlið bílstjórans í rauðum bíl, þrjú börn aftur í. Henni fannst hún eiga þennan mann og börn og vera um þrítugt. Bílslys varð þar sem hún dó í draumnum ... Jamm, svo mundi hún eftir þessu þegar hún var um þrítugt í raunveruleikanum og þá hafði sitt af hverju gerst, eiginmaður og þrjú börn í dæminu ... Ómissandi blað!!!Vona að dagurinn ykkar verði góður, eiginlega bara frábær! Farin að vinna, vinna, vinna!
Blogg
Einmana, vinalaus Suri Cruise (2), Sunday Rose NicholeKidmansdóttir og fleira ...
10:02 › 2. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
