Ég sat sæl við tölvuna í gærkvöldi þegar Celine Dion hóf upp raust sína og söng lagið All by myself
í fjarstýringarlausu sjónvarpstækinu í bókaherberginu. Fyrsta hugsun
mín var sú að erfðaprinsinn væri að reyna að drepa mig (hann var á
fjarstýringunni í stofunni) en svo mundi ég eftir ættgengri óbeitinni á
CD og vissi að hann hefði sofnað í leisíboj . Ég nennti ekki að standa
upp og slökkva þótt líðan mín versnaði hratt. Ég var í spennandi
net-lúdói ... og ákvað að afplána lagið, guði sé lof. Ég fann nefnilega
hvernig illskan, grimmdin og mannvonskan náði tökum á mér smám saman og
fylltist sturlaðri bræði yfir meðferð Evrópu á okkur, litla sæta
landinu sem er í rjúkandi rúst og það yfir nokkrum skitnum þúsundum
milljarða. Á meðan Celine veinaði í svona þúsund mínútur fæddist
snilldarhugmynd sem þýðir að við gætum slegið milljón flugur í einu
höggi! Ég set hana hér fram og spyr þjóðina mína: Hvernig væri ef við tækjum okkur til og hreinlega sigruðum í Evróvisjón-söngvakeppninni næst?
Ég á reyndar eftir að útfæra þetta aðeins betur
en sé fyrir mér fallegt ungmenni með Bamba-augu syngja fyrir hönd
Íslands hrærandi lag um einsemd þjóðar, blankheit, einelti, afleiðingar
hryðjuverkalaga og sár vonbrigði vegna örugga sætisins í öryggisráðinu
þangað til annað kom í ljós. Viðlagið gæti verið: „We are so sorry, we
are so sad!“ Djöfull verður gaman að sjá evrópska áhorfendur grenja úr
sér augun.
Ég veit að fæstir Íslendingar
munu hafa efni á því að vera með síma næsta vor þannig að við yrðum að
hafa dómnefnd. Hún á að sjálfsögðu að gefa Bretum 12 stig, Dönum 10
stig, Hollendingum 8 stig og svo framvegis, bara til að sýna hversu
stórhuga og full fyrirgefningar við værum. Það yrði líka sem salt á
sárin hjá þessum fyrrum vinaþjóðum okkar.
Svo þegar við höldum Evróvisjón í Laugardalshöllinni vorið 2010 þá getum við nýtt okkur alíslensk efnavopn. Mér dettur í fljótu bragði í hug að hafa eingöngu þorramat og mysu til
sölu í sjoppunni í Höllinni og skreyta salinn með opnum harðfiskpokum.
Annað: Allir útlendingar kaupa lopapeysu
og við getum undirbúið þetta ef við byrjum strax, og hvert og eitt
okkar prjónað peysu úr illgirni* og djöfull* (*Halldór frændi).
Þegar síðan sigurvegarinn frá síðasta ári, 2009,
kæmi svo fram á sviðið til að syngja gamla vinningslagið myndi hann
svipta af sér listavel gerðri grímunni (Össur hf?) og í ljós kæmi ...
Silvía Nótt.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
