Íslensk kona var stödd í þýskum banka í gær og ætlaði 10.000 krónum yfir í evrur. Bankagjaldkerinn sagði; „Fyrirgefðu, ég get ekki skipt fyrir þig, þetta er ónýtur gjaldmiðill.“ Sú íslenska varð hissa á svip en sagði ekkert. Gjaldkerinn bætti við og veifaði 5.000 köllunum: „Viltu fá þetta aftur eða á ég að henda þessu?“ (Þetta er sönn saga).
Þegar ég sá fréttina um sakleysi Breta um að frysta ALLT peningaflæði við ákvað ég að hringja í vinkonu mína sem rekur útflutningsfyrirtæki og á í viðskiptum við Bretland. Mig langaði að vita hvort hún hefði fengið greiðslur fyrir vöruna sína síðan bankakreppan skall á ... Nei, hún hefur ekki fengið krónu og þó tengist íslenska bankastofnunin hennar í engu þeirri stofnun sem hryðjuverkafrystingin er á, eða Landsbankanum! Hún hefur ekki fengið pund í hálfan mánuð ... þótt breskur viðskiptavinur hennar sé búinn að borga henni. Hún sendir út vöru, kúnninn borgar jafnsamviskusamlega en þetta stoppar í Bretlandi! Þeir segja hreinlega ekki satt, þessar elskur. En í fréttinni segir m.a. þetta: "Breska fjármálaráðuneytið neitar sök og segir að bresk stjórnvöld hafi ekki með neinum hætti takmarkað viðskipti við íslenska banka að öðru leyti en því að eignir Landsbankans á Bretlandi hafi verið frystar." Sjúr, vinkona mín getur vonandi borgað laun starfsmanna sinna með þessum orðum.
Annars er ég skíthrædd um að þetta komi í veg fyrir að við fáum Rússalánið: http://visir.is/article/20081017/LIFID01/233291636
Ekki fékk ég sætan sessunaut í strætó eins og síðast, bara einhvern skólakrakka. Mikið langaði mig að þykjast sofna, halla mér asífellt nær honum og fara svo að slefa á öxlina á honum, bara til að skemmta mér ... en svoleiðis gerir maður bara ekki þegar þjóðin er öll í sárum. Við fengum silfurgráan strætófák undir okkur í morgun vegna bilunar þess gula. Ef við keyrðum í holu gerði fjöðrunarbúnaðurinn í bílstjórasætinu það að verkum að Skúli dinglaði upp og niður allan Akrafjallsveginn, fastur í beltinu og væri hann ekki svona þroskaður hefði hann æpt VÚHÚ! alla leiðina að göngunum. Þetta er víst gert til verndar bílstjórum ... svo að þeir verðir aldrei sjóveikir í lífinu. Í leið 15 var ljóshærð gella undir stýri, brosandi og sæt eins og Haraldur. Held að það séu enn strangari skilyrði að komast að hjá leið 15 en öðrum leiðum. Inntökuskilyrði örgla að hafa sérgáfu (ljósmyndun, söng, dans, myndlist og slíkt), dæmi: Haraldur ljósmyndari og Andri Backman tónlistarmaður sem hafa keyrt leið 15.
Jæja, nóg að gera, óska ykkur góðs föstudags, elskurnar, og farsællar komandi helgi!
P.s. Hrund, vinnufélagi minn, liggur í kasti núna, hún er að fletta nýju myndasögubókinni hans Hugleiks Dagssonar (sem er SNILLD), Jarðið okkur. Hún emjaði yfir einni teiknimyndinni þar sem maður stóð upp á borði með eistun ofan í brauðrist. Þegar hann var spurður um þetta svaraði hann: "Ég datt!"



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
