Auðvelt var að fá bílastæði við Kringluna í
dag, enda ekki jafnmargir á sveimi þar og síðast þegar ég kom þangað.
Það er algjör misskilningur að okkur Íslendingum, múslimum norðursins,
mæti alls staðar slæmt viðmót vegna ábyrgðarlausra gjörða okkar í
heiminum, stelpan í sjoppunni í Hagkaup, útlensk og allt, var ekkert
nema almennilegheitin. Sama má segja um starfsfólkið í Kaffitári þar
sem við vinkonurnar fengum okkur sjúklega góðan latte. Þótt ég hafi
dregið saman seglin, eins og flestir Íslendingar, ætla ég ekki að
sleppa því að fá mér gott kaffi í kreppunni og sá að margir hugsa á
svipaðan máta, biðröð myndaðist hratt fyrir aftan okkur og setið var
við flest borð. Maður á að vera góður við sig! Mikið langaði mig að
vera ofsagóð við mig og kaupa bol í rekka með öðrum góðum bolum en á
honum stóð: Börnin eru það dýrmætasta sem við eigum núna, seljum þau!
Jamm, svo heyrði ég því fleygt
að hámarkslaun í bönkum núna séu 950 þúsund (bankastýra) á mánuði í
stað 70 milljóna eða svo. Algeng laun millistjórnenda innan við hálfa
millu og síðan fengi venjulegt bankafólk talsvert lægra að vanda. Það
fékk mig til að hugsa um góðærið sem svo margir tala um að hafi ríkt
hérna. Mig minnir, leiðréttið mig ef mér skjátlast, að t.d.
ræstingafólk, fólk sem vann við umönnun barna eða aldraðra, margt
skrifstofufólk, verkafólk eða hreinlega stór hluti íslensku þjóðarinnar
hafi lapið dauðann úr skel, launalega séð. Eini munurinn var sá í
góðærinu að flestir gátu fengið lán, lán sem þarf samt að borga til
baka með vöxtum og verðtryggingu. Ég er svo fegin að iðnaðarmaðurinn
minn sveik mig/gleymdi mér. Ég ætlaði að gera breytingar á baðinu og í
eldhúsinu. Eldhúsbekkurinn við vaskinn er t.d. ónýtur vegna vatnsleka
(áður en ég flutti inn), blöndunartækin nánast ónýt og fleira. Allt
komið á HOLD, enda er himnaríkið mitt algjört himnaríki þótt það sé
ekki „fullkomið“ í augum einhverra og Innlit-Útlit myndi ekki láta sjá
sig hjá mér.
Gat ekki horft á allt boldið en
... Jackie og Nick eru náttúrlega í rusli yfir uppákomunni á
tískusýningunni og Nick eðlilega ógurlega sár út í geðþekka geðlækninn
Taylor sem lét hann rifja upp hræðilegu minningarnar um æskuna þegar
Jackie, mamma hans, seldi sig ... og fyrir að snúa svo baki í dyrnar
þegar hún las þetta inn á segulband sem gerði Stefaníu, erkióvini
Jackie, auðvelt fyrir með að hlusta. Taylor er svo reið yfir þessu öllu
að líkurnar á því að hún giftist Thorne, syni Stefaníu og bróður Ridge
sem hún var einu sinni gift og á öll börnin með (Tómas og tvíburana),
eru nú sáralitlar.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
