ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Höfundur kreppujeppanna og smá bold líka

23:17 › 15. október 2008

Bummer Game Over Þegar Halldóri frænda leiðist
þá gerist alltaf eitthvað skemmtilegt. Hann dúllaði sér m.a. við að gera Game Over jeppann sem
hefur ferðast helling um netheima. Nú hefur hann skapað nýjan bíl
(myndin til hægri) sem segir allt sem segja þarf, eins og hinn. Það er
kannski ljótt af mér að segja þetta ... en vonandi leiðist honum sem
oftast!

Boldið var svakalegt í dag. Stefaníu tókst með klækjum að rústa flottu tískusýningunni fyrir mæðginunum Nick og Jackie. Eftir að glæstar stúlkur höfðu sýnt línuna hans Garrisons (heitir leiðinlegi Mæðginin Jackie og Nick hönnuðurinn
það ekki?) rotaði Thorne hann og Stefanía lét gamla skipperinn sem
keypti afnot af Jackie í gamla daga ganga eftir pallinum í stað Garra,
öllum til undrunar, líka þeim gamla sem hélt að hann væri í öðrum
erindagjörðum, eða að hitta hina fögru Jackie aftur sem saknaði hans
eða eitthvað. Steffí fór síðan í hátalarakerfið og kynnti þann gamla
sem einn af fjölmörgum elskhugum Jackie sem hefði unnið fyrir sér sem
hóra á árum áður. Með þessu vonaði Steffí að stjórn
Forrester-tískuhússins heimtaði að það fari aftur í hendur gömlu og
réttmætu eigendanna. Taylor, sem er við það að fara að giftast Thorne,
hitti bróður Thornes og fyrrum eiginmann sinn til margra ára, hann
Ridge, og komst að því hjá honum að eitthvað væri í bígerð. Hún mætti
með Ridge á tískusýninguna en of seint. Steffí, móðir Thorne og Ridge
og fyrrum og tilvonandi tengdamóðir Taylor, rústaði Jackie fyrir framan
elítuna í tískubransanum og fjölda fréttamanna. Tjaldið féll þarna og
við tók óbærileg bið eftir næsta þætti sem verður kl. 17.28 á morgun.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?