ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Fjandskapur og lítilsvirðing gagnvart Íslendingum

16:54 › 14. október 2008

Strikið Ég er í sjokki yfir þessu, vonandi fyrirgefur Orðið á götunni mér „þjófnaðinn“:

Orðið á götunni
er að íslensk kort hafi verið klippt í stórum stíl í verslunum í
Danmörku í gær og í dag og íslenskir viðskiptavinir þar mætt mjög
breyttu og öfugsnúnu viðmóti.

Áhafnameðlimir
(áhafnir, innsk. GH) íslenskra flugfélaga segjast hafa tekið á móti
farþegum á leið heim til Íslands frá Kaupmannahöfn, sem hafi verið í
öngum sínum eftir helgarferð eða stutta heimsókn. Ein lýsing hljóðar
svo: “Allir Íslendingar sem gengu um borð voru í öngum sínum og þökkuðu
guði fyrir að vera komin um borð, því fólki í helgarferð og fólki í
stuttum heimsókum hafði aldrei verið sýnd eins mikil lítilsvirðing.

Þegar
fólk borgaði vörur sínar með kortum sínum í búðum á Strikinu og víðar,
var kortið tekið og klippt í tvennt. Fólkið okkar var rekið út úr
búðunum í sjokki. Verslunareigendur sögðu við reiða og sneypta
Íslendinga að þeim hafi verið uppálagt að gera slíkt ef fólk sýndi slík
kort í búðum í Danmörku og sagði fólki að snauta burt úr þeirra landi.“

Skyldi
ekki hinum venjulega múslima líða svona, dæmdur fyrir skoðanir og verk
mikils minnihluta fólks úr hans röðum? Það finnst mér vera
umhugsunarefni.

ATH. HEF FENGIÐ ÞÆR UPPLÝSINGAR AÐ ÞETTA HÉR AÐ OFAN SÉ GRÓUSAGA. BIÐST VELVIRÐINGAR Á ÞVÍ AÐ HAFA BIRT ÞETTA EN KÝS AÐ HAFA ÞAÐ ÁFRAM Á SÍÐUNNI MÉR TIL EILÍFRAR HÁÐUNGAR OG LÆRDÓMS ... :)

Sinfó Þetta, af vef RÚV, er líka ömurlegt:

„Fyrirhugaðri
tónleikaferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands til Japans hefur verið
frestað um óákveðinn tíma. Skipuleggjendur ferðarinnar í Japan segja að
í kjölfar sviptinga í efnahagslífi Íslands sé eftirvæntingin eftir
tónleikum sveitarinnar orðin minni en engin.

Þröstur
Ólafsson, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, segir tíðindin ákaflega
bagaleg og komi sér illa fyrir hljómsveitina sem hafði undirbúið
ferðina undanfarin tvö ár.“

Ég var au pair úti í London
(að verða 18 ára) þegar þorskastríðið stóð sem hæst, eða 1976.
Aðalfréttirnar á BBC, Nine o´clock news, hófust iðulega á fréttum af
deilunni. Mamma ráðlagði mér óttaslegin að þykjast vera frá Finnlandi
sem ég gerði náttúrlega ekki. Bretar tóku mér frábærlega vel og aldrei
fékk ég hnjóðsyrði frá neinum vegna þjóðernis míns, ég var svo sem
heldur ekki í Hull eða Grimsby.

Reiðin út í okkur víða um heim
núna er ekki eðlileg, það er eins og það gleymist að íslenska þjóðin,
hinn venjulegi Íslendingur, á virkilega um sárt að binda núna. Eins og
ég færi að berja alla Nígeríumenn bara út af nígerísku svikamyllunum
... eða væri brjáluð út í Davíð, systurson minn, bara af því að hann
heitir Davíð ... Það verður löng bið á því að ég fari til Danmerkur,
Englands eða Japans ... eða bara nokkuð. Ekki að ég eigi fyrir ferðinni
eða fengi gjaldeyri ...

Eitt jákvætt sem vinkona mín benti mér á í gær. Yfirdrátturinn minn þykir mjög hagstætt lán núna, engin verðtrygging ...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?