ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Reiður almenningur og smá bold

18:19 › 13. október 2008

Business Class Það er ekki alveg rétt
að allir auðmenn Íslands séu flúnir á braut til skattaparadísa í
Karíbahafinu. Einn þeirra, fyrrum ofurlaunamaður, lét sjá sig á
líkamsræktarstöð á dögunum og var víst baulað á hann þar til hann
hrökklaðist út. Annar var í „sakleysi sínu“ að ganga inn á Saga Class í
flugvél nýlega þegar maður (á sama farrými) veittist að honum og spurði
hvort hann væri að flýja land, svo hrinti hann honum niður í sætið.
Ekki beint gaman að vera þekkt andlit úr þessum geira núna. Ég veit svo
sem ekki hvað hægt er að gera til að fólk róist, kannski á fólk ekkert
að vera rólegt, sprengiþráðurinn er ákaflega stuttur og reiðin út í
ráðamenn er líka mikil. Veit að haldnir eru róandi fundir víða í
þjóðfélaginu núna, fólk hvatt til að missa ekki stjórn á sér og standa
þétt við bakið á næsta manni. Sameinuð stöndum vér og allt það. Vinkona
mín var á einum slíkum í dag á vegum ríkisins.

Peningar Símtöl til mín núorðið hefjast
yfirleitt á: „Hvað tapaðir þú miklu?“ Sumir vina minna hafa tapað
einhverjum milljónum, þeir eru ekki fégráðugt fólk, heldur fólk sem
treysti ráðum sem það fékk í bankanum um ávöxtun og ráðin voru
örugglega gefin í góðri trú. Hvern hefði órað fyrir þessu öllu saman?
Ja, ekki okkur sauðsvartan almúgann. Nú er mikið talað um að
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin séu farin að skipta bankaleifunum
á milli sín, nýjar stjórnir nýju bankanna séu mannaðar fólki úr þeirra
röðum. Væri ekki ráð að breyta öllu svonalöguðu núna og setja
hagfræðimenntað fólk þarna inn? Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur
kannski á þessu og svo verður örugglega allt rosalega gott þegar við
erum komin í Evrópusambandið, mér skilst að sambandsþjóðirnar styðji
svo vel hver við aðra núna ...! Annars virðist allt vera á örlítilli
uppleið í heiminum í dag eftir ráðstafanir ríkisstjórna viðkomandi
landa ... nema á Íslandi. Átti ekki a.m.k. að lækka vextina?

Bók „Hvaðan ertu að fá
þessar bækur?“ spurði fréttamaðurinn í kristilegri ekkifrétt á RÚV í
gærkvöldi (hvaðan færðu þessar bækur?). Ekkert skrýtið þótt fólk api
þetta eftir og segi: „Hvar voruð þið að sitja? Ég er ekki að skilja
þetta,“ og fleira í þeim dúr. Eigum við að minnsta kosti ekki að reyna
að tala sæmilega rétt mál á meðan við komum okkur upp úr kreppunni? Er
íslenskt mál ekki það eina sem við eigum eftir ... svona næstum því?
Svo getum við haldið okkur við kurteisina og í staðinn fyrir að segja
t.d. okrurum að éta skít getum við sagt þeim að snæða óhreinindi.

Jólin hjá Eric, Stefaníu, Ridge og Brooke Boldið er sjúklega spennandi
þessa dagana en það er ekkert nýtt. Stefanía er komin með tak á Jackie
(áður Payne) eftir að hún heyrði Taylor geðlækni, fyrrum tengdadóttur
sína, lesa inn á segulband það sem fram kom á fundinum með Nick, syni
Jackiear. Algjör sprengja, eða að Jackie hefði selt sig í gamla daga!
Ég hef misst af einhverju í atburðarásinni en Nick á að hafa lofað
Taylor að selja Forrester-fólkinu tískuhúsið til baka en hann kúgaði
það út úr Eric með því að hóta því að láta senda Stefaníu, konu Erics)
í fangelsi. Jackie datt niður stiga og þegar hún kom út úr kómanu laug
hún því að Stefanía hefði hrint henni. Svo ætlar Nick að svíkja þetta
og Stefanía er brjáluð. Kafteinn Jerry Kramer er maðurinn sem borgaði
Jackie fyrir blíðu hennar og nú ætlar Stefanía með hjálp sonar síns,
Ridge, fyrri eiginmanni Taylor, að hafa uppi á honum til að sanna þetta
og það tekst. „Ef hann býr yfir jafnskaðlegum upplýsingum og ég held
...“ segir Steffí kvikindislega og undirbýr versta dag í lífi Jackiear
og Nicks, sem verður daginn sem fyrsta tískusýningin eftir
eigendaskiptin fer fram. Vá, hvað ég skal vera dugleg að bolda á
næstunni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?