ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Bylting og sætar beljur

13:30 › 13. október 2008

„Mánudagur til mæðu,“ stundi einn samstarfsmaður minn í mötuneytinu í hádeginu. Annar bætti við: „Nú eru allir dagar til mæðu!“ Við hlógum að þessu og þessir neikvæðu tóku alveg undir. Fólk í kringum mig er fúlt yfir aðgerðaleysi stjórnvalda, af hverju eru vextir t.d. ekki lækkaðir? spyr það. „Nú ætti að mótmæla í miðbænum,“ sagði einn, „almenningur vera á götum úti með mólótov-kokteila og mótmæla ráðamönnum!“ Ein konan sagði þreytulega: „Æ, það er svo erfitt að fá bílastæði í miðbænum, það myndi enginn nenna að mæta.“ Allir hlógu. Ísland í hnotskurn. Það er samt mikill hiti í fólki, allir vilja aðgerðir! Ég vona bara að ef við fáum lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þurfum við ekki að sæta afarkostum í staðinn, t.d. að einkavæða heilbrigðiskerfið okkar og annað sem margir hafa varað við að undanförnu.

Ásta tók bráðhuggulegan ráðuneytisstarfsmann upp í bíl sinn í Mosó sl. föstudag og skutlaði honum heim á Skaga. Hann skammaði hana á leiðinni fyrir að draga samferðakonuna (mig) út í bíl einn morguninn á nærbuxunum ... Ástu fannst þetta ógurlega fyndið en ég ítrekaði við hana þegar við ræddum þetta í morgun, að ef ekkert markvert gerðist á leiðinni með henni þá þarf eitthvað að skreyta, það gerist t.d. alltaf eitthvað mjög magnað í strætó. Hjá okkur Ástu bar t.d. hæst í morgun að við þurftum að stoppa á Innnesveginum til að hleypa yfir sætum beljum á leið í fjósið. Minningar úr sveitinni í gamla daga rifjuðust upp og ég mundi eftir því hvað kýr eru annars dásamleg dýr.


Vonandi verður dagurinn ykkar dásamlegur, kæru bloggvinir. Er farin að vinna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?