Þótt ég sé mikill kattavinur fannst mér ekkert sérlega huggulegt að
vakna með afturenda Kubbs óþægilega nálægt andlitinu á mér í morgun. Svona
notfæra gæludýrin sér veikleika manns, ég á ekki mann og er því varnarlaus
gagnvart slíkum uppákomum, enda hef ég ekki „Feng Shui-að“ herbergið mitt í
svona ástarskyni. Rúmið mitt stendur t.d. upp við vegg en skilyrði til að ná sér
í gæja er víst það að hægt sé að komast upp í rúmið beggja megin. Svo eru ekki
alveg eins lampar á báðum náttborðum hjá mér, bara eitt náttborð og einn
lampi. Svo er mikilvægt að hafa ekkert drasl undir rúmi (tékk), tvær eins
styttur í suðvesturhorni herbergisins (tékk), engan spegil sem maður sér sig í úr rúminu (tékk) og ekkert „drasl“ (hmmm, allt of
mikið af bókum en bækur eru svo sem ekki drasl).

Í gær var haldin skemmtileg hátíð til að bjóða palestínska flóttafólkið
velkomið á Skagann. Við mættum með góðgæti og flestum datt greinilega í hug að
koma með súkkulaðidæmi (jesssss) því nóg var af því (jessss). Konurnar dönsuðu
við undirleik æðislegrar arabiskrar tónlistar og sýndu frábæra takta. Held ég
endurskoði þessa reglu mína um að dansa bara við lagið Luftguitar.
Ég hef hreinlega ekkert gáfulegt til málanna að leggja í sambandi við kreppuástandið
hjá þjóðinni/heiminum. Er að hlusta á elsku Silfur Egils, hef lesið ógrynnin
öll af bloggfærslum fram á nætur, hlustað vandlega á fréttir og nú er ekkert
annað að gera en að bíða eftir því að málin leysist eða ekki. Held í þá
von að ég hafi
verið berdreymin fyrir hálfum mánuði þegar mér fannst landið vera í rúst en við
(Íslendingar?) skoppuðum um á skipi, sem minnti mjög á gömlu Akraborgina, og höfðum
það af. Ég bloggaði strax um þennan draum og fannst verst hvað ég var búin að
gleyma miklu úr honum en þennan sama morgun var Glitnir ríkisvæddur.
Skipbrot nýfrjálshyggjunnar, landflótti ungs fólks ef allir skrilljarðarnir lenda á okkur ... og fleira og fleira, heyrist í Silfrinu. Held að almenningur setji mikið traust á Jóhönnu Sigurðardóttur. Kannski er hún „Akraborgin“.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
