ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Kjötsúpudiss og týndur Bjartur

16:53 › 1. október 2008

Svölunum í himnaríki´i morgun Fólk er greinilega uggandi þessa dagana,
heyrði sögur af nokkrum sem áttu fé í Sjóði 9 í Glitni (lítil áhætta
víst) og töpuðu talsverðri upphæð, ein sem ég kannast við sagðist hafa
tapað tugum þúsunda. Nú er gott að eiga bara yfirdrátt. Ofan á allt
þetta kom í ljós að það var kjötsúpa í matinn í hádeginu. Kjötsúpa er
reyndar ekki sama og kjötsúpa. Yfir matnum ræddum við um uppsagnir í
þjóðfélaginu, hækkun lána, matvara og lækkun hitastigs úti. Ekki furða
að okkur sé illt í maganum ...

Mikið var ég fegin að Ásta fór
á bíl í bæinn í morgun (nótt) og tók mig með, í síðustu viku var ég
eiginlega bara á strætó, en þá var líka gott veður. Það eru svo
sem engar fastar bílferðir hjá okkur, frekar en í fyrra, bara
duttlungar Ástu sem ráða ... Það var svo kalt úti og hefði verið
skelfilegt að bíða á strætóstoppistöðinni ... bara í hálfa mínútu. Ég
settist á gaddfreðna hanska Ástu (lævíslegt ráðabrugg hennar) sem voru
ó-íveranlegir eftir næturdvöl í bílnum. Rassahitarinn í sætinu gerði
líka sitt gagn, ásamt heitum latte a la himnaríki, og innan skamms
vorum við orðnar hot og girnilegar.

Bjartur í pössun í himnaríki Elsku Bjartur Míu- og Sigþórsson,
(köttur) er týndur og hefur ekki komið heim í tvo daga. Hann hvarf líka
í fyrra í einhverja daga og kom síðan rosalega hás heim, hefur
örugglega lokast einhvers staðar inni og skælt út í eitt. Mía og Sigþór
búa við Hjarðarholt á Skaganum og Bjartur, aðalkrúttið á heimilinu, er
brúnbröndóttur og hvítur með ól. Ólin er að sjálfsögðu merkt og hann er
ábyggilega eyrnamerktur líka. Mjálmar krúttlega, svona eins og
lítill kettlingur. Blíður og góður köttur. Mikið vona ég að hann
finnist sem allra fyrst, hann hlýtur að vera í hverfinu sínu, þarna í
kringum Fjölbrautaskólann, kannski inni í bílskúr hjá einhverjum sem
hefur ekki tekið eftir honum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?