ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Gurrí

Gurrí

Gurrí er aðstoðarritstjóri Vikunnar og annáluð fyrir smekk sinn fyrir ljúffengu eðalkaffi. Hún hefur komið víða við í fjölmiðlum á löngum ferli og lætur sér fátt óviðkomandi. Gurrí er í hópi vinsælustu bloggara landsins.

Kjötsúpudiss og týndur Bjartur, erfðaprins af Hjarðarholti

14:24 › 1. október 2008

Svölunum í himnaríki´i morgunFólk er greinilega uggandi þessa dagana, heyrði sögur af nokkrum sem áttu fé í Sjóði 9 í Glitni (lítil áhætta víst) og töpuðu talsverðri upphæð, ein sem ég kannast við sagðist hafa tapað tugum þúsunda. Nú er gott að eiga bara yfirdrátt. Ofan á allt þetta kom í ljós að það var kjötsúpa í matinn í hádeginu. Kjötsúpa er reyndar ekki sama og kjötsúpa. Yfir matnum ræddum við um uppsagnir í þjóðfélaginu, hækkun lána, matvara og lækkun hitastigs úti. Ekki furða að okkur sé illt í maganum ...Mikið var ég fegin að Ásta fór á bíl í bæinn í morgun (nótt) og tók mig með, í síðustu viku var ég eiginlega bara á strætó, en þá var líka gott veður. Það eru svo sem engar fastar bílferðir hjá okkur, frekar en í fyrra, bara duttlungar Ástu sem ráða ... Það var svo kalt úti og hefði verið skelfilegt að bíða á strætóstoppistöðinni ... bara í hálfa mínútu. Ég settist á gaddfreðna hanska Ástu (lævíslegt ráðabrugg hennar) sem voru ó-íveranlegir eftir næturdvöl í bílnum. Rassahitarinn í sætinu gerði líka sitt gagn, ásamt heitum latte a la himnaríki, og innan skamms vorum við orðnar hot og girnilegar. Bjartur í pössun í himnaríkiElsku Bjartur Míu- og Sigþórsson, (köttur) er týndur og hefur ekki komið heim í tvo daga. Hann hvarf líka í fyrra í einhverja daga og kom síðan rosalega hás heim, hefur örugglega lokast einhvers staðar inni og skælt út í eitt. Mía og Sigþór búa við Hjarðarholt á Skaganum og Bjartur, aðalkrúttið á heimilinu, er brúnbröndóttur og hvítur með ól. Ólin er að sjálfsögðu merkt og hann er ábyggilega eyrnamerktur líka. Mjálmar krúttlega, svona eins og lítill kettlingur. Blíður og góður köttur. Mikið vona ég að hann finnist sem allra fyrst, hann hlýtur að vera í hverfinu sínu, þarna í kringum Fjölbrautaskólann, kannski inni í bílskúr hjá einhverjum sem hefur ekki tekið eftir honum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?