Grobbbækur eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Bestar í þeim flokki eru bækurnar Ég vil nú hafa mínar konur sjálfur og Áfram með smérið, piltar eftir Ólaf bónda á Oddhóli. Í bókunum segir Ólafur montsögur af ferðum sínum til útlanda, kvennafari og slagsmálum. Grobbið og sjálfhverfan eru listform í meðförum Ólafs.
Í gær hóf ég svo lestur bókarinnar Saga af forseta eftir Ólaf bónda á Bessastöðum og ég er ekki frá því að Bessastaðabóndinn slái nafna sínum bóndanum á Oddhóli við í grobbinu og sjálfhverfunni.
Tökum nokkur dæmi:
Bls. 534: ,,Hún (Barbara Boxer) þekkir Ólaf Ragnar frá gamalli tíð og gaf sér góðan tíma til að ræða við hann þó að hún stæði einmitt þennan dag í hörðum samningaviðræðum við George W. Bush Bandaríkjaforseta og fulltrúa hans um tímasetningar varðandi Íraksstríðið og hugsanleg endalok þátttöku Bandaríkjamanna í því."
Bls. 534: ,,Hún (Olympia Snow) tók forsetanum afar vel og eftir fundinn var frásögn af honum og umræðuefni þeirra komið inn á heimasíðu hennar."
Bls. 536: ,,Mikil hreyfing var á jarðhitamálum í Bandaríkjunum vorið 2007 og kann að vera að forseti Íslands hafi átt einhvern þátt í auknum áhuga bandarískra þingmanna á málinu."
Bls. 560: ,,Hún (Sonja Gandhi) ávarpaði forsetann og sagði Ólaf Ragnar vera ,,vin Indlands" sem er eitt mesta hrósyrði sem útlendingur getur fengið á Indlandi. Hún bætti síðan um betur og sagði að Ólafur væri ,,einn af okkur" sem er auðvitað enn meira hrósyrði."
Bls. 446: ,,Áhugi Kínverja á Íslandi vekur athygli, ekki síst í ljósi þess að aðeins 3-4 þjóðhöfðingjum er árlega boðið að koma í opinberar heimsóknir til Kína og eftir því sem næst verður komist eru Tony Blair og Frakklandsforseti á biðlista eftir að komast þangað."
Bls. 450-451. Eftir að kínverskur embættismaður hafði tilkynnt að Kínaforseti yrði ekki viðstaddur undirritun samnings Björgólfs Thors við kínverskt fjarskiptafyrirtæki: ,,Embættismaðurinn var nálægur og kallaði Örnólfur á hann og bað mig um að tala við hann. Þetta var á gangstétt fyrir utan Chaoyang-sjúkrahúsið, sem við höfðum verið að skoða, og þar las ég þessum embættismanni pistilinn um nauðsyn þess að undirritun færi fram síðar um daginn að viðstöddum forseta Kína, eins og ráð hafði verið fyrir gert. Til þess værum við hingað komnir og annað yrði alvarlegt áfall. Fleiri rök tíndi ég til. Kínverjar sem voru þarna hjá sögðust aldrei hafa heyrt annan eins lestur. Og það merkilega gerðist. Þetta gekk eftir."
Mér þóttu þessar grobbsögur ljómandi skemmtilegar, allar nema sú síðasta. Samkvæmt henni hafði Björgólfur Thor lagt mikla áherslu á að fá mynd af sér með kínverska forsetanum við undirskrift samningsins, enda myndi slík ljósmynd opna fyrir honum flestar dyr í kínversku athafnalífi og stjórnsýslu. Forseti Íslands virðist hafa verið svo staðráðinn í að þóknast Björgólfi að hann var reiðubúinn til að veitast að gestgjöfum sínum, óbreyttum embættismönnum, með yfirgangi og dónaskap. Hégóminn varð háttprýðinni yfirsterkari. Ólafur fullkomnar svo óskammfeilnina með því að grobba sig af þessu á prenti.
