ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 0.9° 0m/s Calm
Franz Gunnarsson

Franz Gunnarsson

Rokkari röflar

  • Svartur á leik sýnd á Reykjavík Live

    16. maí 2012

    Vegna fréttar um Sigurð Hólm í DV í morgun sem ætlar að sniðganga tónlistarhátíðina Reykjavík Live sem hefst í dag og hvetur aðra til að gera það sama sé ég mig knúinn til að svara fréttinni sem einn aðstandenda hátíðarinnar!


    Til að taka af allan vafa þá er Jón Stóri ekki tengdur tónlistarhátíðinni Reykjavík Live og alls ekki neinum af þeim fjölmörgu listamönnum sem þar koma fram! Ástæðan fyrir því að hann kemur fram í kynningarmyndbandi sem tengt er við hátíðina er einföld. Íslenska sakamálamyndin Svartur á leik verður sýnd á hátíðinni á sunnudaginn og því var leikarinn Damon Younger sem leikur illmennið Bruno í myndinni fenginn til að þróa og gera kynningarstiklu í anda myndarinnar. Fyrir þá sem ekki vita þá fjallar Svartur á leik um undirheima á Íslandi og er hún gerð eftir metsölubók Stefáns Mána. Damon fékk frjálsar hendur og bjó til þessa senu eins og áður segir í anda myndarinnar. Hann er tilbúinn að ræða þetta mál við Sigurð eða fjölmiðla ef þess er óskað.


    Reykjavík live bað um að það yrði gerð stikla með Damon í karakter sem Bruno. Var þetta einungis gert til að kynda undir sýningu á Svörtum á leik sem sýnd verður á sunnudaginn.


    Í ljósi þess að þessi stikla hefur farið fyrir brjóstið á fólki höfum látið loka fyrir birtingu á umræddri kynningarstiklu. Við vonum að fólk láti ekki þessa umfjöllun plaga sig og kynni sér öll þau frábæru tónlistaratriði sem verða í boði á Reykjavík Live en yfir 50 tónlistarmenn munu stíga á stokk næstu fimm daga. Brosum nú saman og höfum gaman og njótum tónlistarinnar sem er það sem skiptir höfuðmáli

    Skrifa athugasemd

  • Árásin á Snorra í Betel

    14. febrúar 2012

    Snorri í Betel er einn af þessum evangelistum sem trúir því að samkynhneigð sé synd. Það er svosem í fínu lagi að svona trúarofstækistrúðar eins og Snorri séu að ausa úr viskubrunni sínum á internetinu en það er ekki í fínu lagi að Snorri geri það þar sem hann vinnur sem kennari. Það er nefninlega eitthvað til sem heitir siðareglur sem kveða á um að kennurum beri að gæta orða sinna og vera ekki að níðast á samfélagshópum.


    Snorra finnst það hinsvegar hans réttur að geta níðst á samfélagshópum samhliða því að kenna börnum. Eftir að hafa fengið viðvörun 2010 hélt hann uppteknum hætti og nú er svo komið að hann hefur verið leystur frá störfum vegna brota á téðum siðareglum. Hann fær reyndar núna að níðast á netinu á fullum launum sem mér finnst alveg fráleitt. Fyrst Snorri var búinn að fá aðvörun en hundsaði hana þá ætti hann að taka pokann sinn og fá greiddan uppsagnafrestinn.


    Svo birtist Messías. Árni Johnsen kemur í pontu á hinu háa Alþingi og rausar um árásir Samfylkingarinnar á hendur Snorra. Ofbeldi og valdníðsla og hvaðeina. Hvað er að gerast? Finnst Árna það bara í lagi að kennari sé að níðast á samfélagshóp sem á sér fullan tilverurétt og það í sátt við land og þjóð, líka Alþingi. Svo virðist sem Árni sé skoðanabróðir Snorra gegn samkynhneigð vegna trúarskoðana enda er það nú frægt þegar hann missti sig á Þjóðhátíð hérna um árið. Páll Óskar dirfðist að knúsa kærastann sinn á gigginu sínu á hátíðinni. Árni ætlaði sko ekki að leyfa svona hommerí á sinni hátíð. Fréttatilkynning til Árna! 95% þjóðarinnar elskar Pál Óskar og er alveg sátt við að hann sé hommi. Komdu í nútímann. Ef ég hef rangt fyrir mér þá er Árni bara að verja gamlan vin úr Eyjum í pontu á Alþingi og er það eitthvað skárra?


    Finnst Árna í lagi að brjóta siðareglur? Hefur hann ekkert lært síðan hann braut lög og reglur þessa lands. Ég bara skil ekki hvað hann vill upp á dekk nema að reyna sjóða saman eitthvað rugl til að klína á Samfylkinguna. Þarf ekki forsetinn bara að náða Snorra svo hann geti haldið áfram að predika sinn boðskap og kennt börnunum í leiðinni! Kannski í pontu á Alþingi? Það hefði kannski einhver í þinginu átt að segja Árna að þegja.. .. djók :-) Ekki blóta meira á Alþingi. Það er subbuskapur. Já og ekki vera að grípa frammí, það er dónaskapur...


    P.s. Þetta er ekki Samfylkingaráróður


    ROKK  &  RÖFL

    Skrifa athugasemd

  • Whitney Houston

    12. febrúar 2012

    Dag einn sirka 1987 stalst ég inn í herbergi eldri bróður míns (sorrí Nonni). Ég þurfti að komast í músík og hann var með fjarsjóðinn. Vanalega spilaði ég vínylinn þegar hann var ekki heima en þarna var líka geisladiskaspilari, algjör nýjung og spennandi tækni. Ég setti geisladisk í geisladiskaspilarann og bjóst við Star Wars en fékk í staðinn "I Wanna Dance With Somebody". Lagið greip mig strax og áður en ég vissi var ég kominn í rífandi stuð á (dans) gólfinu,feeling the heat með Whitney Houston


    Árum seinna var ég í Skerjafirðinum í bæjarvinnu að leggja torfur um sumar. Hópurinn okkar var með útvarp Xið í gangi og fregnir bárust að Whitney Houston hefði gifst Bobby Brown söngvara í New Edition. Mér leist ekkert á blikuna enda vandræðagaur þessi Bobby. Slúðurdálkarnir göspruðu um stormasamt samband og allskonar vesen og því miður var það allt satt. Hjónabandið gekk ekki upp og söngkonan sökk í fen lyfjamisnotkunar og vandræða. Whitney náði sér aldrei á strik þrátt fyrir frábæra spretti í tónlistinni.


    Þetta eru ömurlegar fréttir því Whitney Houston afrekaði ótrúlega hluti á sínum stutta ferli og því algjör bömmer að hún gat ekki klárað ferilinn með bravúr. Hún átti fullt erindi en örlögin sóttu hana því miður of snemma. Blessuð sé minning hennar.


    Skrifa athugasemd

  • Listamannalaun dópistanna

    10. febrúar 2012

    Jæja þá er búið að birta listann yfir þá sem fá listamannalaun í ár og að sjálfsögðu vakna upp draugarnir sem láta mis gáfuleg ummæli falla um þessi umdeildu fjárútlát í kommentkerfi DV við frétt sem birt var í gær. Innlegg eins og að þeir listamenn sem fá þessi tímabundnu laun geti nú legið heima útúr dópað á kostnað skattgreiðenda vekja mikla furðu hjá mér og að listamenn séu iðjuleysingjar, latte lepjandi kaffihúsarottur og þar fram eftir götunum sýnir hugsunargang fólks gagnvart listafólki þessa lands. Persónulega þá vill ég óska því listafólki til hamingju með þessi tímabundnu laun og ég hlakka til að njóta afraksturs vinnunnar sem þessir listamenn geta nú dempt sér í hvort sem það er sviðslist, myndlist, ritlist, tónlist eða hönnun.


    List er ekki hobbí eins og margir vilja halda fram. Lang flestir sem leggja fyrir sig listir hafa menntað sig eins og aðrar stéttir. Það krefst mikillar vinnu, tíma og átaks að skapa list. Aðeins brot af þessu listafólki sem sækir um listamannalaun fær þau og aðeins eru þau tímabundin. Til að fá listamannalaun þarftu að gera fulla grein fyrir því hvað þú ætlir að vinna að á þeim tíma sem þú þiggur launin og þú mátt ekki vera í öðru starfi á meðan. Ef þú uppfyllir ekki þau skilyrði sem sett eru samkvæmt lögum færðu ekki launin. Ef þú færð launin en skilar ekki verkinu frá þér færðu ekki listamannalaun aftur. Það er fagnefnd skipuð af menntamálaráðherra sem fer yfir umsóknirnar og fylgist með þróun mála og getur afturkallað launin ef listamaður er ekki að uppfylla skilyrðin.


    Listamannalaun er fjárfesting í listafólki þessa lands sem ber hróður Íslands mest um gjörvalla heimsbyggð. Við eigum listamenn á heimsmælikvarða en í grunninn þá er verið að styðja við listsköpun fyrir Íslendinga en svo virðist að margir vilji meina að þetta sé bara rugl. Vil ég þá spyrja þá sem hugsa þannig hvort bækur, tónlist og myndlist séu til á þeirra heimilum sem finnst þetta vera rugl og að list sé bara hobbí eins og t.d. golf? Sækir þetta fólk leiksýningar eða horfir á íslenskar bíómyndir eða sjónvarp (sem eru styrkt af kvikmynda / handritssjóðum)?


    Samkvæmt nýlegri könnun kemur fram að skapandi greinar velta tæplega 200 milljörðum árlega, skapa um 10.000 störf og virðisaukaskattskylt velta er meiri en t.d byggingariðnaðurinn og er á pari við álframleiðsluna. Það kemur semsagt mun meira til baka en lagt er í greinina og því ber auðvitað að fagna. Svo má ekki gleyma að þessi laun fara ekkert í að kaupa flatskjái eða lúxusjeppa því jú listamenn verða nú að eiga í sig og fjölskylduna og hafa þak yfir höfuðið. Þessi peningur fer semsagt beint inn í hagkerfið.


    Fólk furðar sig á því af hverju er verið að greiða listamönnum laun. Ef listamenn eru svona góðir geta þeir ekki bara lifað af listinni! Til að svara því ætla ég að taka ungan rithöfund sem dæmi. Rithöfundur fær hugmynd að bók og vinnur í hugmyndinni þangað til sest er niður og byrjað er að skrifa. Þetta ferli getur tekið ár þangað til að handrit er tilbúið fyrir prentun og útgáfu. Rithöfundurinn er semsagt að vinna að verkinu launalaust í ár áður en sölutekjur af bókinni koma inn. Listamannalaunin brúa því bilið fyrir rithöfundinn sem myndi aldrei geta klárað verkið og þá myndum við Íslendingar aldrei geta notið afraksturins ef ekki væri fyrir listamannalaunin. Þetta á við um allar listgreinar. Engin laun berast fyrr en að verkin eru komin á markað og það tekur alltaf tíma að skapa list.


    Ísland er örsmár markaður og því er það aðeins brotabrot af listamönnum sem geta framfleytt sér á listinni einni saman. Ég t.d. flokkast sem "atvinnu" tónlistarmaður frá 1992 þegar ég kom fyrst fram á plötu og hóf að koma fram hérlendis og erlendis. Ekki það að ég hafi atvinnu af því að vera í tónlist því eins og ég sagði er Ísland örmarkaður og því mjög erfitt af lifa af tónlistarsköpun einni saman. Ég hef því þurft að vinna með listinni alla tíð og oft hafa sumarfríin farið í að taka upp plötu eða fylgja plötum eftir með tónleikarferðalögum. Ég semsagt fórna mínum frítíma til að skapa tónlist sem fyllir ekki bankareikning minn af seðlum þó ég telst vera í vinsælum og eftirsóttum hljómsveitum. Markaðurinn hér er einfaldlega of lítill. Svo má líka benda á að það fylgir mikill kostnaður að skapa list. Hljóðfærin, strigarnir, penslarnir, efnið í hönnun og náttúrulega vinnuaðstöður eru ekki ókeypis.


    Ég vill beina því til fólks sem úthrópar listamenn sem ríkisstyrkta dópista og latte lepjandi iðjuleysingja að staldra við og hugsa aðeins. Kannski kynna sér málið áður en það fer að bera saman t.d. listamannalaunin og heilbrigðiskerfið. Það sem er lagt í skapandi greinar kemur margfalt til baka í ríkiskassann, listamannalaunin fara inn í hagkerfið og Íslendingar fá gróskumikla listsköpun á öllum sviðum og menningararfurinn magnast og stækkar og gerir okkur andlega rík. Ef ekki væri menning hér væri ekki byggð hér.

    Skrifa athugasemd

  • Ókeypis peningar

    8. febrúar 2012

    Reykjavíkurborg er gert að greiða Frjálslynda flokknum hátt í 7 milljónir vegna þess að Ólafur F fyrrverandi frjálslyndur lét greiða sér þá peninga sem flokkurinn átti að fá fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Ólafur sagði sig úr flokknum eins og frægt er orðið en hélt milljónunum þó svo hann ætti ekkert tilkall til þeirra.


    Frjálslyndir kvörtuðu sáran og leituðu réttar síns og niðurstaðan er að borgin beri að greiða þeim þennan pening. Af hverju er ekki krafist að Ólafur greiði til baka þennan pening fyrst niðurstaðan er skýr að hann eigi ekkert erindi með þessar milljónir? Hvaða rugl er í gangi. Fer það svo að Ólafur F fái þessar milljónir ókeypis fyrst borgin þarf að borga Frjálslynda flokknum þessa peninga eða verður Ólafur krafinn um endurgreiðslu? Það hlítur að gerast annars er eitthvað mikið að.


    Er það ekki svo að þegar Tryggingarstofnun ofgreiðir einstaklingum bætur þá ber þessum einstaklingum að endurgreiða peninginn eins og dæmin sýna og ekkert múður með það. Af hverju ætti þetta að vera öðruvísi í þessu tilfelli. Er Ólafur á einhverjum sér "pólitískum" díl? Get ég einhvernveginn komist í svona ókeypis peninga því ég get alveg hugsað mér nokkrar millur til góðs. Skelli mér kannski í framboð eða heldur frekar til Kúbu og fá mér romm með Blazroca og leika svo á bongo trommur í góðum fíling. Það væri nú ekkert leiðinlegt.


    Mér hefur alltaf fundist það undarleg tilhögun að skattgreiðendur borgi fyrir kosningarbaráttur stjórnmálaflokka eða þá að flokkar séu á spenanum með tilheyrandi fjárútláti úr ríkiskassanum. Þurfa stjórnmálaflokkar virkilega svona mikinn pening til að geta starfað? Er ekki nóg að skattgreiðendur greiði fyrir laun og risnur borgarfulltrúa, þingmanna og annarra í stjórnsýslunni. Af hverju eigum við að greiða fyrir starfsfólk stjórnmálaflokka, húsnæði og rekstrarkostnað? Ég hef aldrei fengið fullnægjandi útskýringu hversvegna þetta fyrirkomulag er hér. Ekki fá ný stjórnmálaöfl svona flottar fyrirgreiðslur fyrr enn á Alþingi er komið. Skekkir það ekki jafnræði. Hvað segja samkeppnisyfirvöld?


    ROKK  &  RÖFL


     

    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?