Fjallkóngurinn

Fjallkóngurinn

Guðmundur Sigurðsson er annálaður kosningasmali og hefur náð slíkum árangri að hann er óumdeildur fjallkóngur. Hann er mannvinur mikill með stórt hjarta og er óþreytandi í baráttunni fyrir réttlæti og betri heimi.

Sjálfstæðisflokkur: Málþóf í 40 ár

29. maí 2012 › 09:06

Fyrsta málþóf sem ég man eftir á þingi var þegar Sjálfstæðisflokkurinn talaði frá sér allt vit vegna breytinga á stafsetningu í landinu. Þetta hefur líklega verið 1974 og mér er minnisstætt að Sverrir Hermannsson, sem þá var helsta vonarstjarna flokksins, hélt ræðu sem stóð í um fimm klukkustundir. Allt afl flokksins var lakt í að berjast fyrir einum staf sem verið hafði skamma hríð í ritmáli þjóðarinnar. Það var Z, sem baráttan stóð um. Ég veit ekki hvað þessir menn hefðu gert ef breyta hefði átt meiru en þessum eina staf.


Auðvitað sigraði lýðræðið að lokum meirihluti alþingis fékk þessu breytt. Þá höfðum við að v´su ekki forseta sem reyndi að kynda undir og gera úr þessu óvild í röðum almennings.


Það merkilega að nú nærri 40 árum síðar stendur Sjálfstæðisflokkurinn en í málþófi. Nú vilja þeir enn og aftur að þeirra vilji verði hærra metinn en vilji meirihluta þings. Þetta er alveg ótrúlegt sjónamið. Hugsanlega er málþóf góð og gild leið til að vekja athygli á einhverjum málum, en fráleitt að halda slíku skemmdarverki á starfsemi þingsins til streitu dögum og vikum saman. Ætti kannski að varða við lög.


Er ekki núna verið að mótmæla því almenningur fái að kjósa stjórnarskrá landsins?  Enda hefur formaður Sjálfstæðisflokksins sagt að hún sé mál þingmanna en ekki almennings. Fyrrverandi formaður þess sama flokks sagði líka menn fengju bara ánamaðka í eyrun ef þeir færu að hlusta á alþýðu landsins.


Undarlegar kenningar en virðast fallnar til vinsælda.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.