ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW
Fjallkóngurinn

Fjallkóngurinn

Guðmundur Sigurðsson er annálaður kosningasmali og hefur náð slíkum árangri að hann er óumdeildur fjallkóngur. Hann er mannvinur mikill með stórt hjarta og er óþreytandi í baráttunni fyrir réttlæti og betri heimi.

STEINGRÍMUR HERMANNSSON

16:25 › 1. febrúar 2010

Það er eftirsjá af Steingrími Hermannssyni þó langt sé um liðið síðan að hann hætti afskiptum af stjórnmálum.  Steingrímur var einhver mesti mannasættir í íslenskri stjórnmálasögu og náði ótrúlega að lenda málum og náði með því til íslenskrar alþýðu langt út fyrir flokkslínur síns Framsóknarflokks.

Um langt árabil var hann þingmaður Vestfirðinga og því velþekktur í fjórðungnum og til margar spaugilegar sögur af honum sem allar áttu það sameiginlegt að bera með sér velvild í hans garð

Steingrímur hafði góðan húmor fyrir sjálfum sér og sagði oft á tíðum brandara á eigin kostnað, eiginleiki sem aðrir hefðu mátt tileinka sér.  Sennilega eru það menn lítilla sæva sem einlægt þurfa að skeyta sínum húmor á einhverjum öðrum með sjálfa sig í guðatölu.

Þrátt fyrir að Steingrímur hafi komið fram í ótal þáttum og fréttatímum á miserfiðum tímum í stjórnmálunum minnist ég þess aldrei að hafa séð að honum rynni í skap eða hann reyndi að beita fólk hótunum í þeim þáttum eða þegar sýnt var frá Alþingi.

Menn höfðu ýmsar kenningar um pólitík Steingríms og sýndist sitt hverjum. Mörgum fannst hann mislukkaður stjórnmálamaður en engum var illa við hann. Eftir að hann hætti og annar tók við liðu ekki margir mánuður þar til ég var farinn að sakna Steingríms sárt og hygg ég að svo hafi verið um fleiri.

Hann lauk starfsferli sínum sem Seðlabankastjóri og farnaðist það vel. Hann bar gæfu til þess að líta á starfið sem embætti en ekki vígvöll fyrir stjórnmálamenn sem komnir eru í útlegð úr pólitík.

Steingrímur varaði oft og einlægt við þeirri vá sem landi og þjóð steðjaði af frjálshyggjuvæðingu til lands og sjávar.
Skemmst er að minnast efasemda hans um þátt Íslands meðal viljugra þjóða þegar Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson lýstu yfir stríði við Írak.

Fráleitt að Steingrímur hefði einu sinni hugleitt slíka fjarstæðu á sínum ferli.

Sendi aðstandendum og vinum Steingríms Hermannssonar innilegust samúðarkveðjur.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.