Nú er komið að því að velja frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Aldrei hefur verið meiri þörf á að vanda valið en nú er, vandinn sem höfuðborgin stendur frammi fyrir er gríðarlegur. Efnahagshrunið hefur víðtækar afleiðingar fyrir borgarsjóð og svo berjast undirfyrirtæki í bökkum þar ber mest á vondum rekstri Orkuveitunnar.
Fólk ætti að hafa það hugfast að það voru fyrst og fremst spilltir karlar sem komu þjóðinni í þann vanda sem við er að etja, karlar eins og Kjartan Magnússon sem nú þiggur milljónir króna frá REI og Orkuveitunni auk launa borgarfulltrúa. Gísli Marteinn Baldursson sem hélt sig í útlöndum stóran hluta kjörtímabilsins og á launum hjá borginni. Hann veit ekki einu sinni hvað hann mætti á marga fundi og reynir að hafa það eftir misjöfnum fréttum í blöðum og áróðursbæklingum.
Þetta eru kosningarnar þar sem komið er að konum, Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur sýnt að hún er farsælasti leiðtogi flokksins um áratuga skeið og er þá ekki af fáum að taka. Nú er að sjá sem hinum stöðugu leiðtogaskiptum sé hætt og festa kominn á flokkinn í borginni.
Sömuleiðis eru Hildur Sverrisdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir góðir fulltrúar á framboðslista flokksins. Það væri djarft hjá Sjálfstæðismönnum að auki hið kvenlega vægi hjá flokknum til sóknar inn í framtíðina.
Kjósum konur og betri framtíð, notum daginn til að hyggja að beri borg og betra samfélagi með heilbrigðum leikreglum.
Blogg
Sjálfstæðisfólk það er stór dagur í dag
08:53 › 23. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
