Um það leiti sem frónbúar sátu að hádegisverði og slöfruðu í sig skötustöppu úr afgöngum gærdagsins fóru ég með Ólafi Ragnarsyni poppar á virðulegt steikhús í Tælandi þar sem í tilefni jólanna var slegið undir veglegri New Yorker steik. Íslenska krónan hefur gert þessa steik alveg ótrúlega verðmæta án þess svo sem að gæðin hafi aukist í sama hlutfalli.
Öfugt við Ísland eru hér allir veitingastaðir opnir og ekki annað að sjá en að Búdda hafi velþóknun á að svangir fái að borða. Nú þegar jólin eru að ganga í garð er mikið um að vera á börum borgarinnar, víða hefur verið slegið upp hljómsveitapöllum á gangstéttum og vestræn rokktónlist flæðir um stræti og torg.
Staðirnir hafa fjölgað borðum þar sem boðið er uppá frían mat. Kærleikurinn svífur yfir vötnum og veigum. Líklega mun hinn gríski guð Bakkus, setja mark sitt á jólahaldið þegar fram á nóttina kemur, en ekki má svo sem forsmá hann fremur en aðra guði.
Hér sætta menn sig við rauð jól í mildu veðri og 30 stiga hita. Stuttbuxur, ermalausir bolir og sandalar eru jólaklæðnaðurinn. Enginn er neyddur í jakkaföt með gömlu tuggunni að allir séu í svoleiðis af því að það séu jól.
Óska öllum heima á Íslandi gleðilegra jóla með kærleika og vaxandi birtu.
Blogg
Aðfangadagur í Tælandi
14:46 › 24. desember 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
