• Ábyrgð Hreins Loftssonar

    17. mars 2010

    Nú liggur fyrir að Hreinn Loftsson vill selja DV. Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að eiga og reka fjölmiðil, mest er ábyrgðin þó kannski þegar kemur að því að selja eina frjálsa fréttamiðilinn í landinu. Ef rétt er sem greint er frá í fréttum að til sé að verða breiður hópur fólks sem vil kaupa blaðið verður Hreinn að gefa fólki tíma til að afla fjár.
     
    Eftir giftusaman rekstur blaðsins væri hræðilegt ef hann tapaði ærunni við að selja þekktum bröskurum eða fjárglæfrafólki sem hefur verið á framfæri þjóðarinnar í raun og sann. Það var ekki öll þjóðin sem fékk að selja í Glitni áður en bankinn var felldur og öllu bankakerfi landsins komið í þrot. Meira að segja sjálfum seðlabankanum.

    Það er heldur ekki öll þjóðin sem fær niðurfelldar skuldir uppá milljarða hjá hinum þjóðnýttu bönkum og bankaleifum. Gjaldþrota leifar gömlu bankanna eru reyndar eitthvað það undarlegasta sem fær að grassera í samfélaginu þessi misserin.

    Hins vegar fær öll þjóðin að borga, borga fyrir óreiðumenn af því að þrotinu var illa stýrt og hrægammar komast upp með það sem þeir vilja.

    Hreinn Loftsson veit mæta vel hvernig þetta er allt í pottinn búið, auðvitað vil hann fá sem mest fyrir sinn snúð en stundum verður líka að viðra þröskulda siðferðis og það yrði honum til ævarandi gæfu ef hann sýndi það fordæmi að stunda viðskipti á siðferðislega velþenkjandi nótum.
    Það getur hann með því að gefa þann tíma sem þarf til að hópur án fjárglæfrafólks geti tekið höndum saman og keypt blaðið.

    Það yrði líka eitthvað svo sætt við það að spilltar skilanefndir eða undalega þenkjandi bankamenn hefðu ekkert með söluna að gera, það væri svo frjáls og falleg framtíðarsýn sem fælist í því.

    Nú er valdataflið allt í kringum Valhöll, spillingin komin með varðstöðvar upp um mela og móa.

    Hreinn ég veðja á þig.

    Vil vekja athygli á að mér er ekki gjarnt að tapa veðmálum.

    Skrifa athugasemd

  • Trampað á fólki í Tælandi

    14. febrúar 2010

    Í austurlöndum er þúsundára hefð fyrir að laga það sem aflaga fer í líkamanum með nuddi. Góðar nuddkonur eru gullsígildi en eru því miður ekki í samræmi við fjölda nuddstofa.

    Þegar farið er í nudd til konu sem kann til verka efast maður á köflum um að skrokkurinn muni þola meðferðina. Kraftalegar konur reka grjótharða hnéskelina í hrygginn á manni og á eftir er olnbogunum borað í alla vöðva. Teygt er á fótum og duglega sparkað í fótvöðva.

    Fundvísum fingrum er borað í hold manns í leit að taugaþráðum. Heljartaki er gripið um hvern vöðva svo að við liggur að maður hrópi af sársauka. Þær eru vel meðvitaðar um allt sem viðkemur líkamanum og reka kvilla á borð við gigt á burt á undraskömmum tíma.
    Ef einhversstaðar er aumur blettur finna þær hann og seiða fram ótrúlegar sárakvalir og vanlíðan. Að lokum er stiginn dans á skrokki gesta og trampað hraustlega á öllum vöðvum, stundum renna á mann tvær grímur þegar óttinn læðist að manni hvort líkaminn muni þola dans þessara kraftmiklu nuddkvenna.

    Strax eftir að nuddinu líkur og maður áttar sig á að hafa sloppið lítt skattaður frá því rennur á mann einhverskonar doði vellíðannar, alveg dásamlegur doði. Lengi á eftir er líkaminn ljúfur og maður upplifir sig eins og ballettdansmær svífandi á dúnsæng um loftin blá.

    Áhrifin eru ótrúleg og hverrar sársaukastunu virði.  

    Skrifa athugasemd

  • STEINGRÍMUR HERMANNSSON

    1. febrúar 2010

    Það er eftirsjá af Steingrími Hermannssyni þó langt sé um liðið síðan að hann hætti afskiptum af stjórnmálum.  Steingrímur var einhver mesti mannasættir í íslenskri stjórnmálasögu og náði ótrúlega að lenda málum og náði með því til íslenskrar alþýðu langt út fyrir flokkslínur síns Framsóknarflokks.

    Um langt árabil var hann þingmaður Vestfirðinga og því velþekktur í fjórðungnum og til margar spaugilegar sögur af honum sem allar áttu það sameiginlegt að bera með sér velvild í hans garð

    Steingrímur hafði góðan húmor fyrir sjálfum sér og sagði oft á tíðum brandara á eigin kostnað, eiginleiki sem aðrir hefðu mátt tileinka sér.  Sennilega eru það menn lítilla sæva sem einlægt þurfa að skeyta sínum húmor á einhverjum öðrum með sjálfa sig í guðatölu.

    Þrátt fyrir að Steingrímur hafi komið fram í ótal þáttum og fréttatímum á miserfiðum tímum í stjórnmálunum minnist ég þess aldrei að hafa séð að honum rynni í skap eða hann reyndi að beita fólk hótunum í þeim þáttum eða þegar sýnt var frá Alþingi.

    Menn höfðu ýmsar kenningar um pólitík Steingríms og sýndist sitt hverjum. Mörgum fannst hann mislukkaður stjórnmálamaður en engum var illa við hann. Eftir að hann hætti og annar tók við liðu ekki margir mánuður þar til ég var farinn að sakna Steingríms sárt og hygg ég að svo hafi verið um fleiri.

    Hann lauk starfsferli sínum sem Seðlabankastjóri og farnaðist það vel. Hann bar gæfu til þess að líta á starfið sem embætti en ekki vígvöll fyrir stjórnmálamenn sem komnir eru í útlegð úr pólitík.

    Steingrímur varaði oft og einlægt við þeirri vá sem landi og þjóð steðjaði af frjálshyggjuvæðingu til lands og sjávar.
    Skemmst er að minnast efasemda hans um þátt Íslands meðal viljugra þjóða þegar Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson lýstu yfir stríði við Írak.

    Fráleitt að Steingrímur hefði einu sinni hugleitt slíka fjarstæðu á sínum ferli.

    Sendi aðstandendum og vinum Steingríms Hermannssonar innilegust samúðarkveðjur.

    Skrifa athugasemd

  • Firring fallista Íhaldsins

    24. janúar 2010

    Á Pressunni er haft eftir Jórunni Frímannsdóttur, sem beið hrakfarir í prófkjöri Sjálfstæðismanna og lenti í áttunda sæti, að það sæti sé baráttusæti og flokkurinn eigi möguleika á að ná hreinum meirihluta í Reykjavík.
     
    Það væri undarlegt ef almennir kjósendur ættu að flykkja sér um hana eftir að samflokksmenn hennar hafa hafnað henni. Það er eiginlega firring að reikna með því. Að vísu hefur flokkurinn farið átakalítið í gegnum síðustu mánuði í borgarstjórn og ber að þakka það hruni landsins þannig að augu fólks hafa beinst í aðrar áttir. Flokkurinn hefur því komist þegjandi og lítt áberandi í gegnum þessa mánuði.

    Listinn er skreyttur með fleiri fallistum sem varla getur verið mikill segull og fráleitt að reikna með að neinn þeirra lýti svo á að þeirra sé ekki óskað og dragi sig í hlé. Þetta fólk er ekki að eltast við hugsjónir heldur peninga og völd. Glöggt má til að mynda sjá það hjá Kjartani Magnússyni sem sópar að sér milljónum í nafni þess að vera borgarfulltrúi.

    Best væri fyrir borgarfulltrúa flokksins að halda áfram að þegja í góðri von um að einhver muni láta blekkjast af þögninni. Svo mikið er víst að enginn lætur blekkjast af málefnum eða frammistöðu borgarstjórnarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.  

    Skrifa athugasemd

  • Sjálfstæðisfólk það er stór dagur í dag

    23. janúar 2010

    Nú er komið að því að velja frambjóðendur á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Aldrei hefur verið meiri þörf á að vanda valið en nú er, vandinn sem höfuðborgin stendur frammi fyrir er gríðarlegur. Efnahagshrunið hefur víðtækar afleiðingar fyrir borgarsjóð og svo berjast undirfyrirtæki í bökkum þar ber mest á vondum rekstri Orkuveitunnar.

    Fólk ætti að hafa það hugfast að það voru fyrst og fremst spilltir karlar sem komu þjóðinni í þann vanda sem við er að etja, karlar eins og Kjartan Magnússon sem nú þiggur milljónir króna frá REI og Orkuveitunni auk launa borgarfulltrúa. Gísli Marteinn Baldursson sem hélt sig í útlöndum stóran hluta kjörtímabilsins og á launum hjá borginni. Hann veit ekki einu sinni hvað hann mætti á marga fundi og reynir að hafa það eftir misjöfnum fréttum í blöðum og áróðursbæklingum.

    Þetta eru kosningarnar þar sem komið er að konum, Hanna Birna Kristjánsdóttir hefur sýnt að hún er farsælasti leiðtogi flokksins um áratuga skeið og er þá ekki af fáum að taka. Nú er að sjá sem hinum stöðugu leiðtogaskiptum sé hætt og festa kominn á flokkinn í borginni.

    Sömuleiðis eru Hildur Sverrisdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir góðir fulltrúar á framboðslista flokksins.  Það væri djarft hjá Sjálfstæðismönnum að auki hið kvenlega vægi hjá flokknum til sóknar inn í framtíðina.

    Kjósum konur og betri framtíð, notum daginn til að hyggja að beri borg og betra samfélagi með heilbrigðum leikreglum.

    Skrifa athugasemd