Bankastjóri Landsbankans telur bankann verða samkeppnishæfari við það eitt að loka útibúum bankans á stöðum eins og á Flateyri, Súðavík, Bíldudal, Grundafirði og Fáskrúðsfirði. Með því móti má spara dýrmætar 400 milljónir á ári.
Ástæða þess að hægt sé að hætta allri bankastarfsemi í fjölmörgum þorpum landsins er sú að 80% bankaviðskipta fara nú fram í gengum internetið. Því er forvitnilegt að velta því fyrir sér, í ljósi þess að 80% bankaviðskipta fara fram í gegnum internetið, afhverju bankinn starfrækir höfðustöðvar sínar í miðbæ Reykjavíkur, þar sem húsnæðisverð og annað er með því dýrasta sem gerist á Íslandi.
Vilji bankinn verða samkeppnishæfari þá felst lausnin ekki í því að hrúga starfseminni inn í dýrustu byggingar landsins í 101 Reykjavík. Raunveruleg hagræðing myndi felast í því að setja bankann niður þar sem húsnæði og annar aðbúnaður er ódýrari en í Reykjavík, enda virðist staðsetningin ekki skipta máli í 80% bankaviðskipta í dag.
Heildarkostnaðurinn á bak við hvern starfsmann í Reykjavík er örugglega margfaldur á við þann kostnað sem liggur að baki starfsmanna á landsbyggðinni. Því ætti hagræðingin að felast í því að nýta starfsmenn landsbyggðarinnar betur og fjölga þeim.
Áður birt á Vestur.is
