ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Eyþór Jóvinsson

Eyþór Jóvinsson

Arkitektúrmenntaður sjómaður fyrir vestan. Drengur með brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar, nánast óstjórnleg fréttafíkn.

  • Snepill sem bjargar lífi

    7. maí 2012

    Það verður nú bara að viðurkennast að ég hafði nú ekkert sérstaklega gaman af grunnskólanum á sínum tíma. Var heldur ódæll og gerði sjálfsagt nokkra kennara gráhærða. Ég varð sjálfur fyrir barðinu á smá einelti og það sem verra var, þá lagði ég í einelti seinna meir. - Eitthvað sem ég hef ætíð séð eftir, og hef reyndar beðið þau afsökunar á.


    Það var nú bara þannig að mér fór ekki að líða vel í skóla fyrr en ég fór að opna skólabækur og læra. En það hafði farið lítið fyrir því svona framan af. En í allri þeirri umræðu sem á sér stað um einelti í dag og þá vanlíðan sem henni fylgir þá langar mig að rifja upp smá verkefni sem að kennarinn okkar, Kristrún Lind, á Flateyri lét okkur vinna.


    Það var ekki flókið, en áhrifaríkt. Hún bað alla nemendur bekksins til að skrifa eina fallega setningu til allra bekkarfélaga sína. þessar setningar tók hún svo saman og útbjó lítið fallegt bréf sem hver og einn fékk. Bréfið bað hún nemendurna að halda fyrir sjálfa sig og geyma vel. Sem ég gerði.


    „Eyþór, bekkjarfélögum þínum finnst þú detta oft eitthvað sniðugt í hug. Vera sætur og góður strákur. Þú þykir hafa góðan húmor og gott að tala við þig enda skemmtilegur persónuleiki. Einhver í hópnum hefur trú á því að þú verðir frægur það verður gaman að vita hvort að það rætist.


    Berðu virðingu fyrir þessum orðum sem félagar þínir og vinir hafa sagt um þig. 


    Varðveittu snepilinn, þú gætir þurft á honum að halda“ 


    Og það var rétt. Nú, 15 árum seinna á ég þennan snepil enn og hef oft litið á hann þegar lífið hefur verið erfitt. Það er neflilega þannig að við erum sjaldan nægilega dugleg að hrósa hvort öðru og minna hvort annað á það hvað við erum öll frábær, hvert og eitt okkar á sinn hátt.  


    Að lokum vil ég kvetja alla kennara landsins og aðra til að gefa sér smá tíma, til að fá nemendur sína til að útbúa smá skilaboð fyrir bekkjarfélaga sína,  til að taka með sér inn í sumarið. - Maður veit aldrei hvernær þeir gætu þurft á þeim að halda.


    Pistillinn hefur birst áður á Vestur.is

    Skrifa athugasemd

  • Vestfirðir verða að framleiða

    1. maí 2012

    Samfélag sem býr við óhagstæð vöruskipti ár eftir ár getur ekki lifað lengi. Hvort sem það er land, borg, bær eða fjölskylda. 


    Að því sögðu þá þætti mér áhugavert að sjá hver viðskiptaójöfnuður Vestfjarða sé, samanborinn við aðra landshluta. Því staðreyndin er sú að við flytjum ódýrt hráefni burtu úr fjórðungnum og þurfum svo að kaupa sömu vörur inn í fjórðunginn aftur á margföldu verði.  


    Fiskurinn er að stórum hluta fluttur óunninn frá Vestfjörðum, kjötinu er öllu keyrt suður, mjólkin fer sömu leið og ruslinu okkar er meira að segja keyrt suður líka. Svo ekki sé talað um unga fólkið sem vill mennta sig og skattpeningurinn okkar sem skilar sér að litlu leiti til baka á Vestfirðina.


    Það verður að ríkja jafnvægi á milli allra landshluta ef við viljum byggja allt landið. Fyrst þurfum við að átta okkur á þeim vanda sem að innanlandsvöruójöfnuður skapar, bregðast við honum og halda í jafnvægi. Jafnvægi verður ekki náð með því að hagræða öllu saman í eina verksmiðju í Reykjavík.


    Við Vestfirðingar verðum að setja meiri kraft í framleiðslu, fullvinnslu vara og sköpun verðmæta. Aðeins þannig getum við byggt samfélagið okkar upp á ný.


    Birtist einnig á Vestur.is

    Skrifa athugasemd

  • Gæfusporið

    31. janúar 2012

    Félag kvenna í atvinnurekstri hefur nýlega afhent viðurkenninguna „Gæfusporið“ við hátíðlega athöfn. Nú kom það í hlut tveggja kvenna sem standa að baki já.is, það er 118, símaskráin, já.is og Stjörnur.is, þar sem hægt er að lofa eða lasta fyrirtæki.


    Last dagsins hjá mér fær Gæfusporið, en það er óhætt að segja að nefndin hafi farið rækilega útaf sporinu í þetta skiptið með því að verðlauna já.is. Fyrirtæki sem hefur nýlega lokað stórum vinnustað á Akureyri þar sem 20 konur misstu vinnuna. 


    Þá má ekki gleyma umdeildir símaskrá sem var gefin út undir þeirra stjórn á seinasta ári. Þar skartaði forsíðan nöktum karlmanni, umvafinn fallegu kvennfólki. Á forsíðunni var maður sem er hvað þekktastur fyrir að tala niður til kvenna. Maður sem hefur talað um og gert grín af nauðgunum og ofbeldi gangvart konum í fjölda ára. - Steríótýpa kvennfyrirlitningar. 


    Það var þá gæfusporið!

    Skrifa athugasemd

  • Vertu Vestfirðingur

    30. desember 2011

    Þennan pistil birti ég í brjun desember á nokkrum vestfirskum miðlum, bb.is, skutill.is og fleirum. Þessi pistill, þótt skrifaður sé um Vestfirði, á hann vel við öll jaðarsvæði á Íslandi og fyrir Ísland í heild. - Það er svo mikilvægt að nýta sér þá þjónustu sem maður vill hafa í heimabyggð. Að velta fjármagninu aftur inn í það samfélag sem við búum í, slaka aðeins á verslunarferðum til boston.


    Þótt Ríkið kjósi að taka aðra hverja skattkrónu burtu frá Vestfjörðum, þá er ekki þar með sagt að við þurfum að gera það líka. Til Vestfjarða flæðir fjármagn, hér eru útgerðir og öflug alþjóðleg fyrirtæki. Ferðamannaiðnaðurinn hefur elfst og straumur ferðamanna fer vaxandi með hverju ári. Það er undir okkur komið að auka hagvöxt á Vestfjörðum og halda honum þar.


    
Við þurfum að standa saman að því að styrkja innviði samfélagsins, þjónustu og verslun. Velta fjármagninu aftur inn í samfélagið, en ekki flytja það suður, samferða skattinum okkar. Viltu hafa öflug menningarlíf? - Farðu þá í leikhús, á tónleika og sjáðu sýningar, af nógu er að taka. Kraftmikið íþróttastarf treystir á veglega umgjörð og íbúar mæti og styðji sín lið, en lesi ekki um sigrana í blöðum morgundagsins.


    Farðu til fisksalans, farðu út að borða og farðu aðeins fyrr á pöbbinn, kauptu kjöt af næsta bónda, nýttu þér þjónustu iðnaðarmanna og verslaðu vestfirskar vörur og þjónustu. - Lestu vestfirskar bækur, klæddu börnin þín í útivistafatnað frá Dórukoti, gefðu kisanum Murr, berðu á þig krem frá Villimey, taktu Hafkalk og borðaðu harðfisk. - Vertu Vestfirðingur!


    
Vestfirðir standa á mikilvægum tímamótum. Sú hætta er raunveruleg að samfélagið fyrir vestan falli saman vegna fámennis og flótta fjármagns, og þá verður ekki aftur snúið. Að sama skapi eru allar líkur á því að hér byggist upp blómleg og öflugt samfélag, með smá hugafarsbreytingu og vakningu er allt hægt. Sendum ekki fjármagnið burt frá vestfjörðum, sendum framleiðslu, þjónustu og vörur frá okkur. Fáum fjármagnið til okkar og nýtum það í heimabyggð.

    Skrifa athugasemd

  • Tækifærin eru á Vestfjörðum

    28. desember 2011

    Fyrir ári síðan var ég atvinnulaus í Reykjavík. Fljótlega eftir áramót flutti ég heim til Flateyrar á ný, upp á von og óvon. Frystihúsið varð gjaldþrota, elliheimilinu lokað, mamma missti vinnuna og amma veiktist alvarlega. - Allt þetta varð til þess að ég ákvað að koma mér vestur á ný, eftir 10 ára dvöl í Reykjavík og Ástralíu.


    Ég ákvað að koma mér vestur og skapa mér vinnu, reyna að láta gott af mér leiða inn í samfélagið. Aldrei hefði mig grunað hvað Vestfirðir hafa upp á mörg tækifæri að bjóða. Nú er það svo komið að ég er kominn í verslunarrekstur, útgáfu og að drukkna í hönnunarvinnu. Verkefnin eru óþrjótandi, tækifærin ótal mörg og nú er svo komið að ég þarf að ráða inn starfsfólk.


    Á Vestfjörðum hafa skapast kjör aðstæður fyrir skapandi og kraftmikið ungt fólk. Sjávarútvegurinn hefur brugðist að stóru leiti, sem skapar rými fyrir nýjar hugmyndir og framkvæmdir. Hér er mikið tómarúm sem verður aðeins fyllt með nýjum og ferskum hugmyndum.


    Áramótin marka tímamót hjá mörgum, þar sem menn fara yfir fortíðina og reyna að ráða í framtíðina. Ég myndi líta til Vestfjarða í leit af tækifærum. Það er komið að okkar kynslóð, að flytja aftur vestur eftir háskólanám, færa þekkinguna aftur í heimabyggð og styrkja samfélagið fyrir vestan.  - Tækifærin eru ekki í blokkaríbúð í Reykjavík. Þau eru hér, á Vestfjörðum.

    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?