6. desember 2009
Stúdíómyndir af hundinum Dexter
Erla Hlynsdóttir
Ástín mín eina, hundurinn Dexter, þarf víst að sætta sig við að þurfa að deila athygli minni með komandi barni áður en langt um líður.
Dexter er á áttunda aldursári en alltaf jafn sprækur og hress. Þó er væntanlega komið að seinni hluta æviskeiðs hans og ekki seinna vænna að eignast almennilegar myndir af honum.
Ég bý svo vel að vinna með stórkostlegum hundaljósmyndara,
Rakel Ósk Sigurðardóttur, sem reyndar er mun fleira til lista lagt en að mynda
hunda. Hún hefur þó mikla reynslu á því sviði enda hundaeigandi sjálf. Nýverið
hélt hún glæsilega ljósmyndasýningu á 40 ára afmælishátí
ð Hundaræktarfélags
Íslands og myndaði hunda þeirra gesta sem komu á afmælishátíðina í Víðidal. Því
þurfti ég ekki að leita langt til að finna ljósmyndara til að taka myndir af
hundinum mínum.
En tíminn leið og aldrei fundum við tíma sem hentaði okkur öllum; mér, Rakel og Dexter. Því var það bæði óvænt og gleðilegt þegar Rakel setti mynd af Dexter inn á Facebook með skilaboðunum: „Dexter kíkti á mig í stúdíóið.“
Dexter fær alltaf að koma með mér í vinnuna þegar ég er á helgarvöktum og helgina áður hafði Rakel líka verið á vaktinni.
Ég hafði aldrei séð jafn dásamlega fallega mynd af honum. Örfáum mínútum síðar fékk ég síðan póst frá Rakel þar sem hún sagði Dexter hafa verið svo stilltan í stúdíóinu að hún hefði bara tekið heila myndaseríu af honum og væri þessa stundina að brenna myndirnar á disk.
Ég sem var enn að dást að fyrstu myndinni réði mér vart af gleði yfir því að til væru fleiri slíkar myndir og hringdi strax í Rakel til að þakka henni fyrir. Þvílíkt sem hún hafði komið mér skemmtilega á óvart.
Nú liggur því beinast við að taka hundaæðið alla leið og senda jólakort með Dexter fyrir þessi jólin.

















