• Vandræðaleg slys í sundlauginni

    9. mars 2010

    Use Lindberg´s baby swimsuit that´s also a nappy, to avoid those embarrassing pool accidents.

    Við mæðgur byrjum á sundnámskeiði eftir nokkrar vikur og um daginn keypti ég þessi líka fínu sundföt á hana. Sérstaklega var ég ánægð með kaupin þegar ég las ofangreindar línur aftan á umbúðunum. Ég get nefnilega varla ímyndað mér neitt verra en að dóttir mín fari hjá sér í sundinu. Hún myndi jafnvel neita að mæta aftur í sundtíma þar til hún er orðin sex mánaða.

    Skrifa athugasemd

  • Leiðinlega fólkið ég

    7. mars 2010

    „Mundu að foreldrar lítilla barna hafa ekki ánægju af neinu nema því sem snýr að barnauppeldi og því sem er ungviðinu fyrir bestu.“
    Úr fermingarblaði Moggans. Greinin ber titilinn: Hvernig á að tala við leiðinlega fólkið?

    Skrifa athugasemd

  • (Herra) Steiktur án kynfæra

    4. mars 2010

    Það er ekkert svo langt síðan ég var harðákveðin í að giftast Stephen Fry. En það er sumsé styttra síðan ég komst að því að hann er hommi.

    Þættirnir hans sem nú eru sýndir á RÚV þar sem hann ferðast um Bandaríkin hafa vakið verðskuldaða athygli. Merki ég athyglina einna helst á því að á meðan á þættinum stendur, og eftir að honum er lokið, hrannast inn stöðuuppfærslur á Facebook þar sem konur á fertugs- og fimmtugsaldri dásama herra Fry og leiftrandi kímnigáfu hans.

    Hann heillaði mig gjörsamlega sem þjónninn Jeeves þar sem hann hafði ráð undir rifi hverju þegar sjentilmaðurinn Wooster hafði klúðrað hlutunum.

    En þeir Hugh Laurie léku einnig saman utan þeirra þátta. Ég nýtti mér tæknina og fann nokkrar skemmtilegar glefsur á Youtube. Á meðfylgjandi myndbandi hefur Stephen misst kynfærin.

    Skrifa athugasemd

  • Fávís þjóð, eða hvað?

    28. febrúar 2010

    Niðurstöður viðhorfskönnunar sem gerð var fyrir útvarpsþáttinn Sprengisand hefur vakið mikla athygli en samkvæmt könnuninni bæta hrunflokkarnir svokölluðu við sig fylgi.
    Fréttamiðlar hafa tekið málið upp gagnrýnislaust. Bloggarar signa sig vegna fávísi og gleymsku landans.
    En nákvæmlega hvað segja niðurstöðurnar okkur?

    Til að hægt sé að yfirfæra niðurstöður könnunar frá úrtakinu og yfir á þýðið er lykilatriði að úrtakið sé valið með handahófsvali.
    Plúsinn gerir könnunina og hefur aldrei notast við handahófsval þegar kemur að viðhorfskönnunum.

    Úrtak Plússins er svokallað sjálfvalið úrtak, það er að þeir skrá sjálfir sem velja að taka þátt í netkönnunum Púlsins. Innan þess hóps er síðan ákveðið hlutfall fólks sem velur sjálft að svara hverri netkönnun. Þekkt er að sjálfval við úrtaksgerð leiðir iðulega til skekkju í niðurstöðum.

    Hvergi kemur fram hversu stórt hlutfall svaraði þessari tilteknu könnun Plússins.
    Það segir sig sjálft að það skiptir máli hvort tíu prósent svara könnun eða níutíu prósent.

    Þær upplýsingar einar sem gefnar eru um svarendur í umræddri könnun Púlssins eru að þeir eru 2500. Það er dágóður fjöldi en skiptir afar litlu máli þegar ljóst er að úrtak er ekki valið af handahófi og engar upplýsingar liggja fyrir um hlutfall svarenda.

    Eftir stendur að niðurstöður könnunarinnar hafa ekki yfirfærslugildi. Þær gefa okkur aðeins upplýsingar um viðhorf þeirra 2500 einstaklinga sem henni svöruðu.

    Upphrópanir um að þjóðin sé fávís og gleymin eiga örugglega vel rétt á sér. Þessi tiltekna könnun er þó ekki rökstuðningur fyrir þeim. Hún gefur mögulega vísbendingu um ákveðna hluti en leggjast þarf í frekari viðhorfsmælingar til að fá áreiðanlegar niðurstöður.

    Skrifa athugasemd

  • Brjóstasýning í garðinum

    27. febrúar 2010

    Þetta er sumsé það sem kallast að fyrirsagnahórast.

    Út um stofugluggann sé ég nú þrjá snjókarla. Einn þeirra er þó klárlega kona, með myndarlegan barm. Annar er síðan snjóhundur.

    Sannarlega öngvir aukvisar sem búa hér á efri hæðinni.

    Skrifa athugasemd