06:10 › 16. mars 2010
Bodil, heiladauða persónan í dönsku gamanþáttaröðinni Klovn, dó í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi.
Sleðahestur fældist með hana í eftirdragi á gamlársdag og þar sem Frank hafði ekki nennt að klæða hana í ullarnærföt þegar hann var að skipta á henni til að leita að giftinghringnum sem hann ætlaði að gefa Miu en Bodil hafði óvart gleypt með desert sem henni var ekki ætlaður - fraus hún í hel í snjóskafli þegar leitarmenn loks fundu hana og hestinn sem fældist.
Bodil setti svip sinn á Klovn-seríuna og verður sárt saknað.
Sorglegt allt saman.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
