ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S
Eiríkur Jónsson

Eiríkur Jónsson

Eiríkur er blaðamaður án hliðstæðu og hefur á löngum ferli komið víða við í fjölmiðlum þannig að eftir hefur verið tekið.

ÚTRÁS ÚR ÚTLEGÐ!

10:57 › 11. mars 2010

Þeir eru ekki
allir eins – útrásarvíkingarnir. Innmúraðir í einangrun eigin gerða
brjótast
þeir um hver í sínu horni.


 


Einn hefur rofið
múrinn og játað syndir sína líkt og alkóhólisti á AA-fundi. Pálmi í
Fons iðrast
á forsíðu DV og biðst í raun afsökunar á rugli útrásarinnar; klikkaðri
typpakeppni sem kúlmíneraði í skrautlegum einkaþotum sem tóku upp og
lentu á
Reykjavíkurflugvelli í kapp við svanina á Tjörninni.


 


Nú síðast stígur
Pálmi Haraldsson fram á árshátíð Iceland Express og útdeilir þar minnst
30
milljónum til prúðbúinna starfsmanna sinna sem þakklætisvott fyrir vel
unnin
störf. Þetta hefði aldrei gerst 2007.


 


Með þessu er
Pálmi útrásarvíkingur að slá sáttatakt við samfélag sem hefur útskúfað
honum.
Honum líður eins og í stofufangelsi, getur ekki hitt vini sína á
kaffihúsum
Reykjavíkur né farið með syni sína í sund. Líf hans er martröð sem
verður að
taka enda.


 


Pálmi er þó
vaknaður af þeirri martröð sem hann deilir með fyrrum viðskiptafélögum
sínum og
skorar á Jón Ásgeir Jóhannesson að fylgja fordæmi sínu og tjá sig
opinskátt og
einlægt um stöðu sína og líðan í veröld sem var. En úr öðrum hornum
útrásarinnar
heyrist fátt.


 


Engu er líkara en
jörðin hafi gleypt Hannes Smárason, Sigurjón Icesave-kóng og Björgólf
Guðmundsson. Stundum glittir að vísu í Björgólf Thor og í dag segir Séð
og
Heyrt frá því að móðir hans og systir hafi flogið á Saga Class heim frá
London
klyfjaðar pökkum og pinklum frá Harrod´s öðrum flugfarþegum til
undrunar. Eru
enn til peningar í stærsta gjaldþrotabúi Íslandssögunnar?


 


Séð og Heyrt
fagnar sinnaskiptum Pálma Haraldssonar og vonar að aðrir
útrásarvíkingar fylgi
fordæmi hans.


 


Hvers vegna?


 


Vegna þess að það
gerir lífið skemmtilegra – ekki síst fyrir þá sjálfa.

---

Leiðari Séð og Heyrt 11. mars - Sjóðheitt blað á næst blaðsölustað.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.