ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.2° 11m/s SSW
Eiríkur Jónsson

Eiríkur Jónsson

Eiríkur er blaðamaður án hliðstæðu og hefur á löngum ferli komið víða við í fjölmiðlum þannig að eftir hefur verið tekið.

FLJÚGANDI FREKJA!

22:42 › 11. mars 2010

Skilst að flugumferðarstjórar séu með rúmar 500 þúsund í grunnlaun og fari upp í milljón með vaktaálagi.

Sæmilegt 2010.

Sérstaklega þegar haft er í huga að flugumferðarstjórn er meira og minna sjálfvirk.

Líkt og þoturnar þar sem flugmenn ýta á "UP" og "DOWN" til skiptis og halla sér þess á milli í háloftunum - í einkennisbúningum eins og hershöfðingjar.

Strætisvagnabílstjórar stjórna þó enn vögnum sínum með handafli og bera mikla ábyrgð.

Legg til lagaasetningu þar sem flugumferðarstjórar og flugmenn verði settir á sama taxta og strætóbílstjórar - mínus 20 prósent vegna sjálfvirkninnar.

Frekja flugstéttanna er inngróinn frá fyrri tíð þegar vinnan var krefjandi samspil hugar og handar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.