ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Eiríkur Jónsson

Eiríkur Jónsson

Eiríkur er blaðamaður án hliðstæðu og hefur á löngum ferli komið víða við í fjölmiðlum þannig að eftir hefur verið tekið.

FÍFLIÐ Í FORMINU!

09:08 › 16. desember 2010

Ligg í flensu eins og fífl og rifja upp heilbrigðari stundir eins og ég lýsti í Bakþönkum Fréttablaðsins fyrir nokkrum árum.

Hér er smábrot af frásögninni:

---

Var þá bent á líkamsræktarherbergi í einni af sundlaugum
borgarinnar; eiginlega sérhannað fyrir einfara. Þar er sjaldan sála en
þó tæki af ýmsum gerðum og stærðum. Og allt ókeypis ef þú borgar 200
krónur fyrir sundið. Ódýrara ef þú kaupir kort. Settist niður og
hugsaði mitt ráð. Bjó til kerfi. Reiknaði allt út.

Byrjaði á því að ganga á bretti líkt og skíðagöngumaður. Þar til
lungun ætluðu upp úr mér. Brá mér þá yfir á eins konar róðrabát og reri
allt hvað af tók. Hundrað viðstöðulaus áratog. Fann hvernig maginn
herptist og rassinn styrktist. Eiginlega jafnóðum. Lyfti svo smálóðum
frá öxlum og upp í loft þar til handleggirni gáfu sig. Hengdi svo
sjálfan mig upp á rimla og hékk þar til líkaminn hafi náð jafnvægi á
ný. Svo út í heita pottinn.

Í raun tók þetta ekki nema 12 mínútur. Eftir þriggja mánaða
daglega þjálfun var ég komin niður í 7 mínútur með sama árangri. Fátt
minnti á kókflösku þar sem ég stóð á bakkanum og leit til veðurs. Ekki
laust við að örlaði á þríhyrningi í línunum væru þær skoðaðar með
jákvæðu hugarfari. Og best af öllu; þetta var hægt að gera einn og
ókeypis.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?